Helgin var þvílíkt stuð
smá lesning
Jæja áður en við fórum var ég til 6,30 um morgunin að koma vöksta/bremsu kerfinu til að virka án þess að steikja VS dælur, þurfti að kaupa eina á föstudaginn 8000kr,
Ég stalst á bílnum hans stefáns klukkan 4 heim að ná í VS vökva og mætti Ragga á leiðinni þá var hann búinn að vera að bóna og þrífa í "marga" klukkutíma
Ég og Stefán fórum klukkan "snemma" frá Keflavík á föstudag og rendum norður ekkert of hratt, ég komst fljót að því að með konu og barn og farangur þá nuddaðist hægra aftur dekk smá enda um nokkuð mikið gúmmí þar, en við stoppuðum í Brú því ég var að míga á mig og þar sem að miðstöðin virkar ekki aftir breytinguna þá var orðið heitt í bílnum, en Erna (kærasta mín) setti samt á kalt og það varð pínu kaldara
hjúket
Á brú fengum við okkur Burger og svona og héldum svo af stað
Stefán gat ekki hamið sig í beygjum og svoleiðis og dró hann á okkur en við náðum honum alltaf aftur í umferðinni,
Þegar við komum á Akureyri fórum við á gistiheimilílið og svona ég og konan fórum að versla á meðan hinir fóru að þrífa, svo rúntuðum við bara, ég og hún vorum ein heima með barnið á föstudag og horfðum á sjónvarp og svona.
Á laugardagsmorgun þá var kominn tími til að taka þátt í spyrnunni og það gerði ég, rétt áður en við áttum að fara í tímatökur byrjaði bílinn að hiksta, ég var ekki sáttur búinn að spenda mánuð í að koma þessu í þennan bíl og þetta ætlaði að byrja að klikka, en mér datt í hug að redda mér smá bensíni og þið sáuð mig kannski hlaupandi um með 2 rauða brúsa, ég rétta meikaði að taka þátt
Þar sem að vanosið virkar ekki og hann virðist vera á Limb mode, þá var hann bara 225hp eins og síðast, en ég náði víst góðum tíma í tímatöku og var sáttur við það, ég leiðinlega lennti á móti roadsternum strax og í fyrstu spyrnu þá fóru ljósin svo hratt af stað að ég satt bara eftir og drullutapaði, en í seinni þá var ég hársbreidd á að vinna með betra starti, þetta var endirinn minn
en stefán lenti á móti Lorenz og vann og fékk því að taka þátt í útslitunum og lenntí í 2 sæti
Svo var farið á borða á Greifanum og farið heim að chilla ég var að passa um kvöldið og var að spjalla bíla við tómo strákanna og Tomma fram eftir öllur samt sem áður,
Um sunnudags morgun þurfti ég að keyra ernu til mömmu sinnar sem var að ferðast á blönduósi, fór rólega þangað en aðeins hraðar til baka, 1klst og 15mín til akureyrar, það er 115kmh meðalhraði, með að keyra fyrir aftan lögin tvisvar og keyra einn hring í varmahlið að líta eftir bróðir mínum sem var að koma þar í gegn á leið norður,
Svo var grill og bíó um kvöldið
Mánudag var auto-x málið og vann stefán með klikkaðan audi tt ökumann rétt á eftir sér, menn voru þvílíkt ánægðir með planið og keppendur skemmtu sér vel, þetta gékk svo hratt að norðan menn vildu 3 umferðir,
Við fórum svo á sýningar svæðið til að gera bíl klára, vorum til 6 um morgunin vegna þess að dót tekur tíma,
Sýninginn var góð og átti stefán bókað lægsta bílinn
Fórum svo beint heim og fyndið er að segja frá því að þegar ég var á undan stefáni í beygjunum í borganesinu þá sá ég hann ekki lengur, þá stoppaði ég til að pissa, svo keyrði ég áfram svo þegar hann var að reyna að hringja og síminn rafmagnslaus þá hélt ég að hann hefði bilað eða sprengt dekk og keyri til baka eftir soldin tíma kom ég að baulu og hringdi þá var stefán að koma að göngunum og var ég alveg tjúllaður á að hafa keyrt tilbaka og meðan stefán gerði sitt besta til að ná mér,
hann hafði þá keyrt framhjá mér þegar ég pissaði
Ég sló nýtt met að keyra í bæinn svo!!
Ég skemmti mér vel um helgina og á næsta ári skulum við skemmta okkur jafnvel og núna,
_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson