Sælir félagar.
Næsta samkoma skv. planinu er á miðvikudagskvöldið 6. september kl. 20:30 við Kringluna.
Það er semsagt efri hæðin við Kringluna/Borgarleikhúsið. Ef veðrið er ekki hagstætt þá færum við okkur niður á neðri hæðina.
Nú er víst hafið nýtt leikár hjá Borgarleikhúsinu svo það gæti verið að við þyrftum að flytja okkur um set í haust eða vetur. Hvernig hljómar hitt hornið á Kringlunni? Þ.e. þar sem stóra auglýsingaskiltið er á móts við gatnamót Miklu- og Kringlumýrarbrautar? Þar getum við líka verið úti ef veður er gott og fært okkur niður ef veðrið hentar ekki.



