Jæja þá er samkoman góða búin. Það var rosalega gaman að koma til þeirra og fá að skoða aðstöðuna á verkstæðinu og sjá þá að verki. Ekki skemmdi fyrir að við fengum kortin góðu, þennan fína mat og ekki má gleyma því að nýja flotta heimasíðan okkar var opnuð
Frábær samkoma, rosalega mættu margir En annars fékk maður svona ágætis niðurstöðu, ekkert stórt að.
Djöfull var gaman að sjá E39 alpinuna og allt draslið í 745 bílnum
Þetta var mögnuð samkoma og eiga mennirnir í B&L hrós skilið Og til hamingju með þessa nýju og glæsilega heimasíðu og nýja lénið Gaman að sjá báðar Alpinurnar og alla hina bimmana
Tony Montana - BBS LM CREW E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM
Þetta var mjög gaman, sérstaklega að sjá alla sem mættu og gerðu þennan dag svona fjölmennan.
B&L á heiður skilinn fyrir veitingarnar og kortin, ásamt að taka öllum sem áttu pantaðan tíma í bilanagreininn. Ég held að allir hafi fengið úrlestur úr sínum bílum ásamt útlistun sinna vandamála ef einhver voru.
Ég hlakka bara til að sjá alla næst, gaman að sjá svona marga og spjalla um hjartans málefni við þá sem eru sama sinnis!
Ég er dálítið svekktur yfir að hafa ekki komist þar sem það var gott útlit alveg frammá fimmtudag, en þá ákvað A4664 að það væri kominn tími á verkstæðisheimsókn. Svissinn orðin svo slitinn að lykillinn gekk ekki að honum og hann fór ekki í gang!
Hann var því dreginn á verkstæði á fimmtudagskvöldið. Þar verður hann þangað til ég fæ nýjan sviss:(
Vonandi var vel mætt - er einhver með tölu á fjöldann og myndir og svoleiðis?
Það voru um 30 Bimmar á planinu, semsagt slatti af fólki. Skemmti mér mjög vel og gaman að sjá báðar Alpinurnar og að sjálfsögðu að fikta aðeins í nýju sjöunni.
Jóhann E36 BMW M3 '96 S50B32 - SELDUR E36 BMW 328iA '95 (Articsilber metallic) - SELDUR