Jæja gott fólk.
Þá fer að styttast í samkomuna. Ég er þolinmóður maður og er ennþá að bíða eftir að heyra frá þeim í B&L, en ekkert hefur heyrst ennþá um tímasetningu og dagskrá. Ég verð úti á landi þangað til á föstudag, þannig að ég á ekki eftir að setja neitt inn á netið fram að því
En það sem ég hef hlerað
og er óstaðfest er að samkoman eigi að byrja klukkan 13:00 og að það verði 3 bifvélavirkjar í því að ástandsgreina og ráðleggja mönnum. Meira veit ég eiginlega ekki.
Hann Gunni sér um að vesenast í kortunum og mér hefur heyrst á honum að það sé eitthvað erfitt að nálgast þá sem eru að útbúa þau, en vonandi að það verði allt klappað og klárt.
Þeir sem hafa skráð sig í ástandsgreiningu eru:
750i 1993 Gummi
328i 1996 Hlynur
520i 1995 Guðjón
325 1992 Tommi
318 1988 Birgir
735 1987 Sævar
Alpina B10 1991
323i 1996 Jón Þór
Að sjálfsögðu er ennþá opið fyrir skráningu í greininguna. Sendið bara póst á mig og þá verð ég búinn að bæta á listann fyrir laugardaginn.
Með kveðju og hlakka til að sjá alla á laugardaginn.
Sæmi