Jæja kæru félagar. Það ætlar ekki að ganga áfallalaust að fá í gegn hestaflamælingu fyrir sjálfrennireiðar okkar.
Búnaðurinn hjá T.B. er bilaður og verður að senda hann utan til að gera við, svo við verðum því miður að slá Dyno-mælinguna af næstkomandi laugardag.
En góðu fréttirnar eru hins vegar að við höfum ákveðið að efna til samkomu í staðinn og hljómar áætlunin svona:
14:00 Laugardaginn 4. september. Mæting í keiluhöllina og verður þar stundaður kúluþeytingur um stund.
Eftir þetta er ætlunin að halda á skjólgóðan stað og slá upp grilli þar sem hamborgarar verða á boðstólum fyrir soltna BMW-krafts félaga.
Vonumst til að sjá sem flesta, nú fer að verða síðasti séns að hittast áður en kuldaboli tekur völdin.
Kveðja,
Stjórnin.



