Það er komið að því!
Sumarið er byrjað, margir farnir að setja sumarbimmana á götuna og þar af leiðandi munu samkomur BMW Krafts hefjast á ný.
Sú fyrsta verður næstkomandi laugardag, 2. maí, klukkan 20:30 á neðri hæðinni í Holtagörðum.
Fjölmennum nú þessa fyrstu samkomu sumartímans og reynum að byrja þetta almennilega!
Planið er síðan að hafa samkomur á þriggja vikna fresti á sunnudögum eftir þessa.


