Filtertækni, sem flytur inn Autoglym vörurnar, hafa boðið okkur á Autoglym kynningu í "trainingcenterið" sitt að Vesturvör 30C í Kópavogi laugardaginn 27. mars kl. 13:00.
Í stuttu máli verður þetta þannig að þeir fá lánaðan bíl hjá okkur og gera eins og nýjan og sýna okkur svo réttu handtökin við meðferð nokkurra efna. Einnig gefst okkur tækifæri að spyrja og leita ráða við ýmis "vandamál" sem þeir hjálpa til við að leysa. Svo verður örugglega eitthvað af léttum veitingum á staðnum.
>> Skráið ykkur hér! <<
Hér fyrir neðan er kort, örin bendir á húsið. Þetta er semsagt þeim megin sem örin bendir á:


