Árið 2008 vorum við með hóprúnt og svo útilegu í Hvalfirðinum og það gekk mjög vel og góð mæting. Árið 2009 var hinsvegar lítill sem enginn áhugi fyrir útilegu.
Ég held að þetta gæti orðið alveg mega stemning! Taka fyrst hóprúnt og hittast svo á tjaldsvæðinu, tjalda, grilla slöngur og skella í sig nokkrum bjórum.
Hvað segiði, eigum við ekki að láta af þessu verða?
Þetta myndi annað hvort vera í Hvalfirðinum eða eitthvað nálægt RVK, engin langferð enda bara verið að tala um að gista eina nótt.




