Núna er akkúrat vika í að maður leggur af stað á bíladaga. Hérna er dagskrá BMWkrafts á bíladögum
Miðvikudagur 16 júní:
Mæting hjá KFC í Mosó kl. 19:00. Brottför á slaginu 19:30!
Fimmtudagur 17 júní
Bílasýning. Ekki komin nákvæm tímasetning en eflaust opið til 20:00
BMWkrafts grillið fræga!! Krafturinn skaffar kjöt og meððí en þið komið með drykki(gos, bjór, brennivín, þú ræður)
Byrjar klukkan 19:00Föstudagur 18 júní
Burn-out Nákvæm tímasetning ekki komin á hreint, eflaust 20:00.
Laugardagur 19 júní
Götuspyrnan. Ekki komin nákvæm tímasetning.
BMWkrafts samkoman verður haldin á laugardeginum. Annað hvort eftir eða fyrir spyrnuna, fer eftir því kl. hvað hún verður. Verður auglýst nánar þegar nær dregur!
Sunnudagur 21 júní
Drift á flytjandaplaninu. Byrjar klukkan 13:00
Heimför eftir driftið.
Munið að keyra varlega og keyra á LÖGLEGUM HRAÐA. Munar nánast engu í heildartíma hvort þú keyrir á 90 eða 120 en þú gætir unnið þér inn alveg FEITA sekt *hóst*Andrew*hóst*
Ég mun eflaust bæta meiru við í þennan þráð, t.d. nánari tímasetningum. Fylgist með þegar nær dregur!
kv. Skemmtinefndin


