Þetta verður einungis fyrir skráða meðlimi í BMWkrafti og þetta er allt í boði B&L. Þeir sem mæta og keyra fá aðild að Kvartmíluklúbbnum í boði B&L
Alveg glæsilegt framtak hjá B&L og þetta þýðir að hverjir þeir sem mæta geta komið á allar æfingar það sem eftir er að sumrinu og komið á keppnir hjá KK
Mæting er klukkan 10:00 og í síðasta lagi klukkan 10:30. Semsagt þeir sem ætla að taka rönn þurfa að vera mættir fyrir klukkan 10:30 því að kl. 11:00 ætlum við að starta þessu.
Þetta verður bara byggt upp sem æfing. Þetta verður síðan bara svolítið frjálslegt og við svona skipuleggjum þetta betur þegar þetta byrjar. Ef einhverjir ákveðnir aðillar vilja taka rönn sín á milli þá verður hægt að redda því á staðnum bara.
Mjög mikilvægt er að þeir sem ætla að keyra komi með sinn eigin hjálm og svo tryggingarviðaukann. Þeir sem eru ekki búnir að redda sér tryggingarviðauka endilega að tala við sitt tryggingarfélag og reyna að fá hann fyrir allt árið.
Það eru 30 sæti laus og þeir sem ætla að keyra eru beðnir um að skrá sig með því að senda mér póst á arnib11[hjá]hotmail.com.
Í skráningunni þarf að koma fram fullt nafn og svo notendanafn á kraftinum
Þeir sem eru nú þegar í KK skrá sig líka og láta það bara koma fram í póstinum.
Menn þurfa að skrá sig til þess að við getum séð ca. hversu margir ætla að mæta uppá kostnað og annað slíkt. Þannig að alls ekki skrá ykkur ef þið ætlið ekki að keyra.
Og ef einhver skráir sig en getur svo ekki mætt verður sá hinn sami að senda á mig póst og láta mig vita.
Að lokum vil ég svo bara hvetja menn til að mæta og prufa að keyra. Alls ekkert nauðsynlegt að mæta á einhverjum tryllitækjum. Bara gaman að koma og prufa þetta.
Ég persónulega hlakka mikið til því að ég hef aldrei prufað að taka rönn á kvartmílubrautinni
Kv. Skemmtinefndin


