Hið árlega poolmót BMWKrafts verður haldið á BILLIARD BARNUM FAXAFENI 13. mars 2004 kl. 19:30
Nú hver hver að verða síðastur. Skráning á poolmótið er í fullum gangi og lítur út fyrir hörkumót. Öllum er velkomið og taka þátt, og ekki láta það stoppa ykkur ef þið haldið að þið séuð ekki góð í pool. Það er nefnilega bjór í spilinu og þeir reyndari eiga það til að sötra hraðar því þeir halda að þeir vinni hvorteðer.
Endilega svarið í pollinum. Svo vill ég sjá alla þá sem ætluðu pottþétt að mæta skv. þessum þræði:
http://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtop ... 97&start=0 skrá sig og taka þátt.
Meðlimir BMWKrafts greiða aðeins 700 kr. Þátttökugjald en aðrir 1.000 kr.
Millifærist inn á reikning 315-13-7354 (kt. 020274-4689). Látið nafnið ykkar fylgja með millifærslunni.
Athugið að hægt er að skrá sig í BMWKraft með því að
smella hér
Vinningarnir í mótinu eru glæsilegir og skiptast þeir svona:
1. sæti
Pool meistari BMWKrafts fær glæsilegan bikar til eignar. Einnig fær hann glæsilegan vinning frá Bifreiðum og Landbúnaðarvélum og stórglæsilegan þrifapakka frá autoglym að verðmæti 4.500 kr.
2. sæti
Sá/sú sem hreppir annað sætið fær glæsilegan vinning frá Tækniþjónustu Bifreiða ásamt því að fá stórglæsilegan þrifapakka frá autoglym að verðmæti 4.500 kr.
3. sæti
Sá/sú sem hreppir þriðja sætið fær stórglæsilegan þrifapakka frá autoglym að verðmæti 4.500 kr.
Hægt verður að versla bjór og hamborgara á vægu verði á staðnum.
Sjáumst öll fersk á pool mótinu laugardaginn 13. mars kl 19:30
Ef einhver hefur eitthvað útá tímasetningu að setja, og hefur tillögur að öðrum tíma má sá hinn sami endilega senda mér EP eða EMAIL.