bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Tollurinn
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=24&t=52579
Page 1 of 1

Author:  Zed III [ Wed 24. Aug 2011 15:02 ]
Post subject:  Tollurinn

Ég verð nú bara að setja niður nokkra punkta um tollverðina sem eru að vinna upp á höfða.

Ég hef nú á stuttum tíma lent í því að fá endursendingar á tveimur pökkum sem ég hef pantað erlendis frá. Eðli málsins samkvæmt stoppuðu þeir báðir hjá tollinum sem vildi sitt.

Ein ferð uppeftir til að útskýra af hverju ég var að fá endursendingar (annað skiptið fékk ég ranga vöru og í hitt skiptið var varan biluð) fékk ég pakkana afhenta og var beðin um að eiga góðan dag. Ég þurfti ekki einu sinni að skilja röngu eða biluðu vöruna eftir hjá þeim, fékk bara að halda henni líka.

Ég bara hélt fyrirfram að tollurinn ætti þetta ekki í sér.

Author:  SteiniDJ [ Sun 16. Oct 2011 12:08 ]
Post subject:  Re: Tollurinn

Tollverðirnir í Keflavík hafa reynst mér vera miklir Stalínistar, en þeir hér í höfuðborginni verið flestir virkilega almennilegir. Og eruð þið búnir að sjá nýju reiknivélina þeirra? Sæll!

Author:  JOGA [ Sun 16. Oct 2011 12:30 ]
Post subject:  Re: Tollurinn

SteiniDJ wrote:
Tollverðirnir í Keflavík hafa reynst mér vera miklir Stalínistar, en þeir hér í höfuðborginni verið flestir virkilega almennilegir. Og eruð þið búnir að sjá nýju reiknivélina þeirra? Sæll!


Var einmitt að skoða þessa reiknivél í gær. Rosa flott.
Bílarnir komnir inn líka. Gaman að því.

Vantar reyndar fídus fyrir bíla þar sem CO2 er ekki uppgefið. Þ.e. þyngd bíls.
En það er einfalt að reikna út CO2 í þeim tilvikum svo það kemur ekki að sök.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/