bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

T-Bone
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=24&t=52138
Page 1 of 1

Author:  gunnar [ Fri 22. Jul 2011 23:21 ]
Post subject:  T-Bone

Lánaði þessum kappa tvö stykki stálfelgur með dekkjum fyrir Bíladaga sumarið 2010.

Honum vantaði ógurlega dekk fyrir driftið fyrir norðan og ég sá auman á drengnum og lánaði honum þetta og sagði honum að skila þessu bara einhvern tíma fljótlega eftir Bíladaga með öðrum spóldekkjum á, ekkert mál.

Ég var ekkert að þrýsta á kauða neitt þar sem mig vantaði þetta ekki mikið, nefndi þetta við hann annað slagið ef ég sá hann upp á braut og hann kom alltaf með afsökun að hann ætti ekki efni á dekkjum á felgurnar til að láta mig hafa til baka.

Þetta fór svo að fara í taugarnar á mér þegar ég sá myndir af honum upp á braut að spóla á felgunum mínum núna nýlega án þess að spyrja mig um leyfi. Sem er algerlega óásættanlegt að mínu mati.

Sendi honum PM oftar en einu sinni og ekkert svarað, þess vegna skrifa ég þetta hér.

Vona að þetta verði til þess að hann skili þessum felgum til mín.

Gunnar

Author:  Alpina [ Sat 23. Jul 2011 17:44 ]
Post subject:  Re: T-Bone

Úúúpsss :|

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/