bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

http://www.schmiedman.dk/
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=24&t=47950
Page 1 of 2

Author:  JonHrafn [ Wed 03. Nov 2010 17:58 ]
Post subject:  http://www.schmiedman.dk/

Pantaði ljós hjá þeim seint á fös kveld. Fékk mail á mánudag um að pöntunin hafi verið afgreidd. Komin inn í forstofu til mín kl 15 á miðvikudegi. :thup:

Author:  kalli* [ Wed 03. Nov 2010 21:21 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

Aldrei orðið vitni af jafn lélegri þjónustu. Pantaði nýru í gamla e36/5 hjá mér, voru ekki til í birgðum á þeim tímabili (Mars 2010) en það stóð þetta vanalega 10 daga bið.

Svo bíð ég....og bíð.....og bíð....eftir 2 og hálfan mánuð þá fannst mér það nú farið að taka of langan tíma þannig að ég reyni að hafa samband við þá og þá fara þau að segja að það sé eitthvað vesen með framleiðandanum og eru að vina í þessu. Ég ákveð að bíða í einhverja nokkra mánuði í viðbót og hef svo aftur samband, ekki ENNÞÁ komið.

Svo dag einn höfum við aftur samband og þá segja þeir að varan sé komin en ekki farin úr húsi, ætluðu að koma þessu í sendingu á næstu dögum. Margar margar vikur seinna hringjum við aftur og þetta var varla farið úr húsi. Svo eftir enn meiri bið þá hringjum við aftur og þá kom í ljós að það er svo langt síðan að greiðslan var að þau voru í einhverju veseni með því skildi það ekki alveg, sögðust ''ekki geta náð í það'' eða eitthvað. Nú var September alveg að enda þannig að í lokin þá var greiðslan bara bakfærð á kortinu aftur.

Held ég kaupi aldrei frá þeim aftur. :|

Author:  gunnar [ Wed 03. Nov 2010 21:48 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

Ég lét swappa mótornum hjá mér hjá þeim. Vinnubrögðin voru alveg ásættanlega en customer service var alveg afleitt.

Erfitt að ná í þá í síma, stóðst lítið það sem þeir sögðu um dagsetningar ofl. Skyldu illa ensku og tóku ekki nógu vel mark á fyrirmælum mínum.

Spurning hvort þetta sé eitthvað bundið við Schmiedmann, mér hefur svona í gegnum tíðina almennt mörg verkstæði vera svona... :lol:

Author:  BirkirB [ Thu 04. Nov 2010 02:16 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

Keypti slatta af dóti frá þeim. Sumt var ekki til á lager og tók 14 daga að fá...Eftir 2 mánuði senti ég þeim email og fékk bara eitthvað rugl til baka...beið í einhverja mánuði í viðbót og fékk loks dótið...hluti af því skemmt því þessu var illa pakkað inn...

Kaupi aldrei neitt þaðan aftur...

Author:  SteiniDJ [ Fri 05. Nov 2010 13:40 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

BirkirB wrote:
Keypti slatta af dóti frá þeim. Sumt var ekki til á lager og tók 14 daga að fá...Eftir 2 mánuði senti ég þeim email og fékk bara eitthvað rugl til baka...beið í einhverja mánuði í viðbót og fékk loks dótið...hluti af því skemmt því þessu var illa pakkað inn...

Kaupi aldrei neitt þaðan aftur...


M.v. það sem ég hef lesið og heyrt, þá eru þessir kauðar eitthvað skaddaðir í hausnum (a.m.k. í samskiptamiðstöð heilans). Mögnuð þjónusta alveg. :?

Author:  JonHrafn [ Fri 05. Nov 2010 20:57 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

Mér líður eins og ég hafi migið upp í vindinn með þessu feedbacki mínu. Ég var greinilega heppinn að fá mitt dót eins og skot.

Author:  SteiniDJ [ Fri 05. Nov 2010 20:59 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

JonHrafn wrote:
Mér líður eins og ég hafi migið upp í vindinn með þessu feedbacki mínu. Ég var greinilega heppinn að fá mitt dót eins og skot.


Ekki það. Held að þetta sé svolítið 40/60% dæmi hjá þeim bara og alltaf gott að vita af því. Oft freistandi að versla hjá frá þeim þegar maður skoðar síðuna hjá þeim.

Author:  Nökkvi [ Tue 09. Nov 2010 23:29 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

Keypti ljós hjá þeim síðastliðið vor. Lét reyndar senda til félaga míns sem býr í Köben. Það tók stuttan tíma og allt stóðst.

Author:  BlitZ3r [ Tue 23. Nov 2010 21:11 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

Búinn að versla Orginal m-aero stuðara,
fullt að smellum á m-tech sílsa og margt fleira

var held ég í bæði skiptinn 4-6vikur að koma, sem mér finnst ekkert hræðilegt
miðað við að þeir áttu um 20% af pörtunum á lager
t.d. er afturstuðarinn framleiddur 93 og framm 2000
enn það var allt fundið og allt stóð

var komið til mín eftir 5vikur

Allaveganna er ég sáttur fyrir utan það að þeir settu stuðaranna í kerfið hjá sér :)

Author:  SævarSig [ Sun 06. Feb 2011 19:40 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

Hef verslað við þá bæði fyrir mig og aðra, fyrir nokkur hundruð þúsund og alltaf allt staðist, aldrei neitt vesen.

Hefur nánast allar dagsetningar staðist og þessháttar, en þá er ég ekki að tala um margar vikur frammyfir mestalagi 2 - 4 daga.

Mín reynsla af þeim er allavega fín, svara öllum e-mailum mínum fljótt og örugglega. Og öllu pakkað inn á fagmannlegan hátt.

Author:  Siggi e12 [ Fri 24. Jun 2011 18:36 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

Pantaði 2 ný frambretti og númeraljós á E12. Brettin voru ekki til á lager en ég fékk þau eftir 22 daga. Mjög sáttur :thup:

Author:  Haffi [ Fri 24. Jun 2011 19:06 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

Pantaði spegla, bremsudiska, klossa, vatnsáls og skynjara hjá þeim. Eftir þrjá mánuði var ekkert komið og bara heimskulegar afsakanir í hvert skipti, endaði með því að ég fékk bara diskana frá þeim.
Mun aldrei nokkurntíman eiga í viðskiptum við þessa skítugu dani aftur.

Author:  Alpina [ Sat 25. Jun 2011 10:24 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

Haffi wrote:
Pantaði spegla, bremsudiska, klossa, vatnsáls og skynjara hjá þeim. Eftir þrjá mánuði var ekkert komið og bara heimskulegar afsakanir í hvert skipti, endaði með því að ég fékk bara diskana frá þeim.
Mun aldrei nokkurntíman eiga í viðskiptum við þessa skítugu dani aftur.


Hold kæft hvor meget lort der kommer ufattelig ofte fra Schmiedmann :thdown:

Author:  Orri Þorkell [ Wed 24. Aug 2011 02:44 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

mundi fara varlega í að panta það sem er ekki til á lager nema spurja þá fyrst. það sem ég hef pantað hjá þeim hingað til hefur allt staðist og passað, og aldrei liðið meira en 2 virkir dagur frá því ég pantaði og frá því ég er búin að fá vöruna HEIM að dyrum. bara toppþjónusta sem ég hef fengið

Author:  srr [ Fri 10. Feb 2012 18:09 ]
Post subject:  Re: http://www.schmiedman.dk/

Pantaði hjá þeim nokkra hluti í e28.
Einn þeirra var ekki á lager og átti ég að bíða í 7 daga eftir honum.
Allar dagsetningar stóðust, pöntunin fór svo frá þeim í gær ,,,,,

Það tók innan við sólarhring að fá sendinguna í hendurnar frá því að hún fór frá þeim í Odense
og þar til hún var komin til Keflavíkur til mín.

Image

Ég er mjög sáttur með þessa einu pöntun sem ég hef pantað frá þeim :thup:

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/