Nú hef ég ekki stundað mjög mikið af viðskiptum við Bjarka, en ég hef spjallað við hann oft og heyrt margar góðar sögur af viðskiptum við hann. Þegar ég keypti minn núverandi E34 535i þá var mér sagt að Bjarki Hallson hafði skipt um hedd á vélinni fyrir ca 2000km síðan og var það einn af þeim factorum sem fengu mig til að ákveða að kaupa bílinn. Ég veit að Bjarki veit alveg hvað hann er að gera þegar það kemur að þessum málum og að hann trassar ekki neitt þegar það kemur að viðhaldi á BMW-um.
Ég hef líka talað við strákinn sem keypti bílinn. Þegar hann var ný búinn að kaupa bílinn þá sá ég hann fyrir utan verkstæðið Skipting í Keflavík og var hann að tala við eigandann. Ég var í nágrenninu og labbaði til þeirra og fór að spjalla, sagði stráknum að ég þekkti til Bjarka og að þetta væri eflaust góður bíll sem hann var að kaupa. Ég sagði honum líka að vélin í þessum bíl er M30B35 og það er ekki fyrir hvern sem er að eiga, þar sem þeir eru einstaklega viðkvæmir fyrir ofhitnun. Strákurinn virkaði á mig eins og að hann hafði ekki mikið vit á þessum hlutum en ég get þó ekki fullyrt hvort það hafi verið raunin. Talaði ekki meira við strákinn en sá bílinn fyrir utan þetta verkstæði nokkrum sinnum eftir það.
Það kemur mér mjög mikið á óvart að sjá svona póst hérna en eins og aðrir hérna þá tel ég það nokkuð öruggt að það vantar eitthvað uppá þessa sögu.
Maggi B wrote:
Ég tengist þessu máli ekki neitt. en þetta er ekki í fyrsta skiptið sem ég sé einhvað svona. þetta feedback svæði er algerlega ónothæft því að ef einhver af þessum "frægu" bmw gaurum fær vont repp þá hoppa allar sleikjurnar í vörn og reyna að ógilda kvörtun fyrsta póstara með því að segja að þeir hafi aldrei lent í veseni.
Það er nú bara þannig, allavega í þessu tilfelli, að þessi "frægi" BMW gaur er í gegnum tíðina búinn að vinna sér inn þetta mannorð í gegnum tíðina hérna Kraftinum og þeir sem hafa verið hérna í lengri tíma vita alveg þetta er ekki maður sem að er eitthvað annað er heiðarlegur.
Ef að það færu hins vegar detta inn fullt af svona sögum þá færi maður að hugsa sig tvisvar um.
Það eru líka til dæmi um "fræga" BMW gaur sem að eru alls ekki frægir fyrir að vera heiðarlegir og ef það kemur negative feedback á þannig gaura þá fá þeir enga vörn sem þeir eiga ekki skilið.
Ef að einstaklingurinn er í rauninni heiðarlegur þá hika þeir sem vita það ekki að segja frá því. Þú getur ekki ætlast til þess að allir sem vita að Bjarki er heiðarlegur en ekki svindlari láti bara kjurrt liggja og leyfi þessu að gangast. Þetta feedback svæði virkar akkurat svona, það kemur þráð um einstakling og aðrir segja sína reynslu af þeim,. í þessu tilfelli er einn sem hefur slæma reynslu en allir aðrir góða reynslu.