http://www.us.is/Apps/WebObjects/US.woa ... e=frett_ny,,
Það borgar sig fyrir viðskiptavini Umferðarstofu, sem hyggjast greiða gjöld vegna eigendaskipta, að vera búnir að greiða bifreiðargjöld af viðkomandi bifreið áður en gengið er frá eigendaskiptunum. Hafa skal í huga að gjalddagar álagningar bifreiðagjalda er annarsvegar 1. janúar fyrir fyrri hluta ársins og hinsvegar 1. júlí fyrir seinni hlutann.
Ef eigendaskiptin eiga sér stað eftir að nýtt gjaldatímabil hefst þarf seljandi að greiða bifreiðagjaldið fyrir það tímabil að fullu. Það er síðan samkomulagsatriði milli seljanda og kaupanda hvernig þeir skipta með sér bifreiðagjaldinu eftir eigendaskiptin því líta má svo á að seljandinn sé búinn að fyrirframgreiða bifreiðagjöldin fyrir kaupandann. Hægt er að reikna út upphæð bifreiðagjaldsins á reiknivél Ríkisskattstjórans sem nálgast má hér. Tekið skal fram að ekki er hægt að greiða bifreiðagjöld með kreditkörtum vegna reglna um staðgreiðsluskyldu skatta. "
Í öllum mínum bílaviðskiptum hvort sem ég hef selt bíl eða keypt hefur seljandi ALLTAF borgað opinber gjöld af bílnum.
En ef seljandi kýs að hafa það hinsegin þá er lágmark að mínu mati að svara símanum eða sms eða segja það við sölu.
Fyrstu viðbrögð seljanda voru þegar að ég setti póstinn inn hér á Feedback þráðinn sem að virðist virka stór + fyrir hann !