bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Pústverkstæði-Hjá Einari
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=24&t=41264
Page 3 of 3

Author:  sh4rk [ Sat 21. Nov 2009 00:55 ]
Post subject:  Re: Pústverkstæði-Hjá Einari

Hann smíðaði í E23 bílinn hjá mér og í staðinn fyrir að setja flangsa eins og hann var beðinn um þá skar hann flangsana af flækjunum og sauð allt kerfið þannig að það þarf að skera það undan

Author:  gunnar [ Sat 21. Nov 2009 02:31 ]
Post subject:  Re: Pústverkstæði-Hjá Einari

Vá, ég á aldrei eftir að fara með bíl í minni eigu til þessa manns...

Þetta virðist vera algjör sveita-framleiðsla í gangi hjá honum :lol:

Krafturinn er að standa sig :thup:

Author:  sindrib [ Sat 26. Dec 2009 06:26 ]
Post subject:  Re: Pústverkstæði-Hjá Einari

ég var að vinna hjá honum hann veit alveg hvað hann er að gera.. en það er oft alveg kreisí að gera hjá honum og hann á það til að gleima hvað fólk var að biðja um,, en ef hann gerir mistök eða einhver er óánægður með verkið þá er því bara kippt í lag á nótæm..

Author:  sh4rk [ Sat 26. Dec 2009 19:41 ]
Post subject:  Re: Pústverkstæði-Hjá Einari

Ég þarf að öllum líkindum að finna mér nýjar flækjur á S38 vélina hjá mér eftir þessi púst smíð frá Einari og þetta var svo langt frá því sem var beðið um

Author:  Vlad [ Sun 27. Dec 2009 03:28 ]
Post subject:  Re: Pústverkstæði-Hjá Einari

sindrib wrote:
ég var að vinna hjá honum hann veit alveg hvað hann er að gera.. en það er oft alveg kreisí að gera hjá honum og hann á það til að gleima hvað fólk var að biðja um,, en ef hann gerir mistök eða einhver er óánægður með verkið þá er því bara kippt í lag á nótæm..


Ekkert skrifað niður hvað hver og einn vill að sé gert fyrir sig? Bara jæja, ég geri þetta bara svona. Ef svo er, - VERULEGA slæm vinnubrögð.

Author:  Kristjan PGT [ Tue 29. Dec 2009 14:42 ]
Post subject:  Re: Pústverkstæði-Hjá Einari

sh4rk wrote:
Ég þarf að öllum líkindum að finna mér nýjar flækjur á S38 vélina hjá mér eftir þessi púst smíð frá Einari og þetta var svo langt frá því sem var beðið um


Ha? Hvernig getur það verið? Skar hann ekki bara flangsana af? Það getur ekki verið mikið mál að sjóða aðra á. Ekki að ég sé eitthvað að afsaka þessi vinnubrögð hjá manninum heldur finnst mér magnað að hann hafi bara gjöreyðilagt flækjurnar

Author:  sh4rk [ Tue 29. Dec 2009 17:25 ]
Post subject:  Re: Pústverkstæði-Hjá Einari

HAnn skar svolítið meira en flangsana af hann skar bara allveg upp við kolektorana á flækjunum og sett svo bara ror þar inní eða utan á, allveg eins langt frá því sem um var beðið eins og hægt var því að hann átti bara að smíða frá flöngsunum sem voru á flækjunum.
Og það sem yrði sett í staðin yrði aldrei eins gott og orginal þannig að það verður bara farið út í það að fá sér aðrar flækjur og ekki verslað aftur við Einar

Author:  Siddibmw7 [ Sun 24. Jan 2010 02:01 ]
Post subject:  Re: Pústverkstæði-Hjá Einari

Mæli mjög með Einari topp gaur mjög gott að tala við hann og hann skilur mann alveg hvernig maður vill hafa þetta hann lét þetta awesome hljóð í gömæu 7unna mína e38 var helv sáttur með það!

Author:  Vlad [ Sun 24. Jan 2010 02:10 ]
Post subject:  Re: Pústverkstæði-Hjá Einari

Siddibmw7 wrote:
Mæli mjög með Einari topp gaur mjög gott að tala við hann og hann skilur mann alveg hvernig maður vill hafa þetta hann lét þetta awesome hljóð í gömæu 7unna mína e38 var helv sáttur með það!


..... ekki hef ég tekið eftir því í ummælum manna hér :lol:

Author:  Tommi Camaro [ Mon 25. Jan 2010 23:51 ]
Post subject:  Re: Pústverkstæði-Hjá Einari

ég bað einar einusinni að setja flangsa á kerfi sem ég var að smíð og hann henti mér næstum út , hann notar ekki svoleiðis . það er bara til að pústa út.
í staðinn varð ég að rífa afturstuðaran af til að taka pústið niður

Page 3 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/