Page 1 of 7

Eðalbílar

PostPosted: Thu 15. Oct 2009 12:31
by Viggóhelgi
Ég er búin að fara þarna með 2 bíla, range rover í bæði skipti. þjónustuðu mig merkilega vel, og ánægja mín jókst til muna þegar að ég áttaði mig á raunvörulega muninum milli þeirra og B&L,
það var að verða óþolandi að eiga við B&L vissu ekki neitt í neinu og reikningarnir $$$$$

stórlækkaði KLST á verkstæði gjaldið.
Jók um 90 % customer Care. (fékk meira að segja að koma þarna eftir lokun eitt skiptið bara til að láta þá lýta á smá bilun og bilanagreina)

100 stig af 100 mögulegum

Re: Eðalbílar

PostPosted: Thu 15. Oct 2009 14:03
by dropitsiggz
Smá OT kannski en mætti ég spurja hvað þeir taka á tíman í vinnu?

Re: Eðalbílar

PostPosted: Thu 15. Oct 2009 14:27
by JohnnyBanana
dropitsiggz wrote:Smá OT kannski en mætti ég spurja hvað þeir taka á tíman í vinnu?

einhver 8þús kall minnir mig.

Re: Eðalbílar

PostPosted: Thu 15. Oct 2009 15:01
by ViggiRS
Þeir tóku minn E-38 bíl sem var í ruglinu...

Unnu þetta mjög pro og hringdu þrisvar í mig til að gefa mér update
með gang mála og fékk síðan SMS með upphæð og að bíllinn væri ready
og verðið var mjög sanngjarnt

Fæ ***** stjörnur af 5 mögulegum :thup:

Vignir

Re: Eðalbílar

PostPosted: Thu 15. Oct 2009 15:21
by doddi1
fór þangað með bílinn og lét yfirfara og smyrja, mjög sáttur með þjónustuna :)

svo í annað skiptið sem ég fór með bílinn, þá var verið að filma og kom þá í ljós að sleðinn var eitthvað laus og þurfti að sjóða eða festa hann betur...

ég kíki til þeirra með ekkert hurðaspjald og grátbið þá um að redda mér, þannig að þeir tóku hann inn samdægurs og redduðu málum á fínum prís.

svo hefur félagi minn líka góða sögu af þeim að segja.

hann var búinn að fara með bílinn sinn (e60 545) til TB og einhvern annan stað, allir vildu meina að hann væri með gangtruflanir vegna slæmra háspennukefla og eitthvað bull... 80 þúsund króna pakki án vinnu var honum sagt.

hann vildi ekki sætta sig við það og kíkti til Bjarka í Eðalbílum, sá hinn sami opnaði húddið, hlustaði á ganginn í bílnum í sirka 5 sekúndur og bilanagreindi hann þá og þegar, ónýtar membrur í einhverju blablabla

held að viðgerðin hafi á endanum kostað innan við 20 þúsund kall með vinnu...

:thup: :thup: :thup: :thup: :thup: :thup:

100% toppmenn

Re: Eðalbílar

PostPosted: Thu 15. Oct 2009 15:36
by JohnnyBanana
ég skal koma með reynslusögu á mánudaginn þegar þeir gera við minn.

Re: Eðalbílar

PostPosted: Mon 19. Oct 2009 19:26
by JohnnyBanana
fékk bílinn frá þeim í dag, þeir löguðu vandamálið,,, fyrir 25þúsund krónur. mér finnst það semí mikið fyrir brotið plaststykki og hálfan líter af sjálfskiptiolíu. en ég get eiginlega ekki kvartað,,, bíllinn minn keyrir hratt núna og er það fyrir öllu. þeim tókst samt einhvernvegin að rústa perunum í þokuljósunum mínum, sem er dáldið leiðilegt. annars er ég rosalega sáttur með þjónustuna, hún var alveg top notch, prýðis gæjar að vinna þarna og mjög flott að sjá vinnuútskýringu á kvittuninni.

Re: Eðalbílar

PostPosted: Mon 19. Oct 2009 20:12
by Jet
Ekkert nema gott um Eðalbíla að segja.
Hafa verið mér hjálplegir reynst vel í alla staði í viðhaldi á M5
:thup:

Re: Eðalbílar

PostPosted: Mon 19. Oct 2009 20:30
by crashed
JohnnyBanana wrote:fékk bílinn frá þeim í dag, þeir löguðu vandamálið,,, fyrir 25þúsund krónur. mér finnst það semí mikið fyrir brotið plaststykki og hálfan líter af sjálfskiptiolíu. en ég get eiginlega ekki kvartað,,, bíllinn minn keyrir hratt núna og er það fyrir öllu. þeim tókst samt einhvernvegin að rústa perunum í þokuljósunum mínum, sem er dáldið leiðilegt. annars er ég rosalega sáttur með þjónustuna, hún var alveg top notch, prýðis gæjar að vinna þarna og mjög flott að sjá vinnuútskýringu á kvittuninni.

hvernig rústa þokuljósunum

Re: Eðalbílar

PostPosted: Mon 19. Oct 2009 23:37
by slapi
JohnnyBanana wrote:fékk bílinn frá þeim í dag, þeir löguðu vandamálið,,, fyrir 25þúsund krónur. mér finnst það semí mikið fyrir brotið plaststykki og hálfan líter af sjálfskiptiolíu. en ég get eiginlega ekki kvartað,,, bíllinn minn keyrir hratt núna og er það fyrir öllu. þeim tókst samt einhvernvegin að rústa perunum í þokuljósunum mínum, sem er dáldið leiðilegt. annars er ég rosalega sáttur með þjónustuna, hún var alveg top notch, prýðis gæjar að vinna þarna og mjög flott að sjá vinnuútskýringu á kvittuninni.

Gott að þú gangir ánægður út enda er það takmark Eðalbíla að fólk gangi alltaf ánægt út og viljum hafa okkar þjónustu vð kúnnan í toppformi. En það er enginn séns að við höfum náð að "rústa" perunum í þokuljósunum hjá þér , það hefur verið ónýtt fyrir.

Ef að þú lest textann sem fylgdi með þá er 25000 kall mjög vel sloppið fyrir bilanagreiningu og mælingu á skiptingu með efni og vinnu.

Kv
Davíð Már
davidm(hja)edalbilar.is

Re: Eðalbílar

PostPosted: Tue 20. Oct 2009 10:38
by gunnar
Renndi þarna við í gær á E36, fékk flotta þjónustu á mettíma :thup:

Re: Eðalbílar

PostPosted: Tue 20. Oct 2009 11:11
by gjonsson
Fór með bílinn minn til þeirra núna í september. Þeir félagar skiptu um pakkningar í mótor, spindilkúlur og tóku svo inspektion II.
Ég er sáttur enda bíllinn enn betri á eftir. :thup:

Þeir mega búast við mér aftur nema bíllinn taki upp á því að verða viðhaldsfrír.

Re: Eðalbílar

PostPosted: Tue 20. Oct 2009 15:04
by JohnnyBanana
slapi wrote:
JohnnyBanana wrote:fékk bílinn frá þeim í dag, þeir löguðu vandamálið,,, fyrir 25þúsund krónur. mér finnst það semí mikið fyrir brotið plaststykki og hálfan líter af sjálfskiptiolíu. en ég get eiginlega ekki kvartað,,, bíllinn minn keyrir hratt núna og er það fyrir öllu. þeim tókst samt einhvernvegin að rústa perunum í þokuljósunum mínum, sem er dáldið leiðilegt. annars er ég rosalega sáttur með þjónustuna, hún var alveg top notch, prýðis gæjar að vinna þarna og mjög flott að sjá vinnuútskýringu á kvittuninni.

Gott að þú gangir ánægður út enda er það takmark Eðalbíla að fólk gangi alltaf ánægt út og viljum hafa okkar þjónustu vð kúnnan í toppformi. En það er enginn séns að við höfum náð að "rústa" perunum í þokuljósunum hjá þér , það hefur verið ónýtt fyrir.

Ef að þú lest textann sem fylgdi með þá er 25000 kall mjög vel sloppið fyrir bilanagreiningu og mælingu á skiptingu með efni og vinnu.

Kv
Davíð Már
davidm(hja)edalbilar.is

jú þær voru í fullkomnu lagi báðar perurnar áður en hann fór inn til ykkar, þriggja vikna gamlar perur, en kannski voru þær bara gallaðar og ákváðu að deyja báðar saman á sama tíma.

Re: Eðalbílar

PostPosted: Tue 20. Oct 2009 15:29
by slapi
JohnnyBanana wrote:

Ef að báðar detta út á sama tíma er eitthvað mjög furðulegt. Það er eitthvað annað að en perurnar myndi ég halda.

Ef þú telur þetta af okkar voldum þá rennirðu bara á okkur.

kv Davíð Már

Re: Eðalbílar

PostPosted: Tue 20. Oct 2009 20:17
by Ampi
slapi wrote:
JohnnyBanana wrote:jú þær voru í fullkomnu lagi báðar perurnar áður en hann fór inn til ykkar, þriggja vikna gamlar perur, en kannski voru þær bara gallaðar og ákváðu að deyja báðar saman á sama tíma.

Ef að báðar detta út á sama tíma er eitthvað mjög furðulegt. Það er eitthvað annað að en perurnar myndi ég halda.

Ef þú telur þetta af okkar voldum þá rennirðu bara á okkur.

kv Davíð Már

Fagmennskan í fyrirrúmi hjá þessum snillingum, bara búnir að reynast mér vel með M5 ;)