bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Eðalbílar
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=24&t=40550
Page 4 of 7

Author:  Einar Vti [ Mon 04. Mar 2013 22:11 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

Einar Vti wrote:
Á pantaðann tíma 4 febrúar hjá þeim, leiðinlega löng bið en vonandi verður það þess virði að bíða eftir þeim, kem með update þegar ég fæ bílinn frá þeim aftur

Þeir fá mínus frá mér EKKI sáttur með þá !

Author:  SteiniDJ [ Mon 04. Mar 2013 22:20 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

Einar Vti wrote:
Einar Vti wrote:
Á pantaðann tíma 4 febrúar hjá þeim, leiðinlega löng bið en vonandi verður það þess virði að bíða eftir þeim, kem með update þegar ég fæ bílinn frá þeim aftur

Þeir fá mínus frá mér EKKI sáttur með þá !

Þú verður nú að koma með meira en þetta.

Author:  ///MR HUNG [ Mon 04. Mar 2013 22:29 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

Einar Vti wrote:
Einar Vti wrote:
Á pantaðann tíma 4 febrúar hjá þeim, leiðinlega löng bið en vonandi verður það þess virði að bíða eftir þeim, kem með update þegar ég fæ bílinn frá þeim aftur

Þeir fá mínus frá mér EKKI sáttur með þá !

Og þú færð mínus fyrir frábæra sögu :roll:

Author:  Angelic0- [ Mon 04. Mar 2013 22:44 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

Spill the beans...

Vantar meira info :!:

Author:  Einar Vti [ Mon 04. Mar 2013 23:05 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

Kanski bara vælusaga í mér, en ég fer með bíl til þeirra.

Ég var búinn að láta Bartek hér á spjallinu lesa af bílnu mínum og kom í ljós að brake light switch væri lélegur og að throttle boddyið væri með nokkrar villur og bendir hann mér á eðalbíla.
Það var villumerki við sjálfskiptinguna og krúsið virkar ekki.

Þar mæti ég með bílinn eftir að hafa beiðið í 2 vikur eftir að fá tíma.
Þeir fá bílinn hálf 9 að morgni til, og seigi ég þeim að það þurfi að skipta um rofan og kíkja á þetta með throttle boddyið því að af og til hefði ég verið að fá EML ljós sem hverfur samt. mér datt í hug eftir að hafa googlað þetta að það þyrfti kanski bara að þrífa upp throttleboddyið eins og ég er vanur á japönsku dósunum sem ég þekki betur inná.

í kringum 2 samadag hringja þeir í mig og tilkynna mér að það sé búið að eyða 2 tímum (25.000kr) í að skoða þetta með throttleboddyið og telja þeir að þurfi bara að þrífa það. sem ég var búinn að nefna við þá, þá spyr ég útí skynjarann og seigir hann að þeir séu ennþá að reyna athuga hvort að hann sé til, að þeir nái ekki á varahlutaversluninni hjá BL sem er frekar slapt því þeir eru með mjög gott þjónustuver.

þannig að ég læt hringja fyrir mig í vissan aðila sem ég vil ekki gefa upp nafnið á hér ánþess að ræða við hann og reddar hann rofanum og maður frá eðalbílum sækir hann í BL og ég fer þangað og greiði fyrir rofann.

rétt fyrir lokun seigja þeir mér að þetta hafi ekki verið rofinn að þeir hafa sett hann í og ennþá verið villan og að þeir hafi teingt aðra ssk tölvu við bílinn og þá hefði villan farið og þetta væri bara tölvan skemmd og að þeir taki svo 2 aðra tíma við að þrífa upp throttle boddyið þá seigi ég nei takk og geri það sjálfur ! ég greiði þeim 3 vinnustundir fyrir þessa skoðun.
þannig að með góðum leiðbeiningum frá þeim finn ég nýja ssk tölvu frá þeim panta hana og fæ hana heim, hendi henni í og vitið menn villan fór ekki.

þá gróf ég upp kassan af nýja rofanum og er hann innsiglaður ennþá eins og þeir hafi aldrei sett hann í til að prufa hann þó svo að það standi í skýrslunni.

Eftir allt þetta sit ég uppi með enga bætingu á bílnum nema að hann skánaði við að þrífa throttle boddyið sem ég gerði sjálfur í skúrnum hjá mér.
Sit uppi með tvær allveg eins tölvur fyrir sjálfskiptingar sem virka greinilega báðar jafn vel $$$
sit uppi með ónotaðan rofa sem er ekki hægt að skila þvi þetta sé rafvara erfitt að skila þannig

og er ég mjög ósáttur með þetta !

Author:  Angelic0- [ Mon 04. Mar 2013 23:20 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

en hvað með að setja rofann í :?:

Author:  Einar Vti [ Mon 04. Mar 2013 23:26 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

Angelic0- wrote:
en hvað með að setja rofann í :?:

þeir seigja í skýrslunni and i quote

farið var að skoða bremsluljósa rofann og byrjað var á því að skipta um hann en það bar engann árangur....

samt er minn sem þeir létu mig kaupa ennþá innsiglaður, ég veit ekki settu þeir einhvern notaðann rofa í bílinn eða eða gerðu þeir þetta bara aldrei.

Author:  Angelic0- [ Tue 05. Mar 2013 00:06 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

Skil þig, er bara að spyrja samt...

Myndi hafa samband við neytendasamtökin og fá viðgerðina endurgreidda...

Ertu ekki enn með kassann innsiglaðann ?

Author:  IvanAnders [ Tue 05. Mar 2013 13:03 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

Hringja beint í umboðsmann Alþingis!

Author:  bimmer [ Wed 06. Mar 2013 00:09 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

Einar Vti wrote:
....og er ég mjög ósáttur með þetta !

Búinn að ræða þetta við þá í Eðalbílum?

Author:  slapi [ Wed 06. Mar 2013 16:25 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

Sem starfsmaður Eðalbíla tala ég aldrei sem slíkur hér inni en mér þykir miður ef þú ert ósáttur , ég hvet þig að hafa samband við okkur sem fyrst og tala við þá helst Bjarka. Það heyrir til undantekninga að einhver fari ósáttur frá okkur og við viljum halda því þannig að fólk sé sátt.
Ég set hann inní málið í fyrramálið.

kv Davíð M

Author:  Alpina [ Wed 06. Mar 2013 19:57 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

Einar Vti wrote:
Angelic0- wrote:
en hvað með að setja rofann í :?:

þeir seigja í skýrslunni and i quote

farið var að skoða bremsluljósa rofann og byrjað var á því að skipta um hann en það bar engann árangur....

samt er minn sem þeir létu mig kaupa ennþá innsiglaður, ég veit ekki settu þeir einhvern notaðann rofa í bílinn eða eða gerðu þeir þetta bara aldrei.

:shock: :shock:

Author:  Angelic0- [ Thu 07. Mar 2013 11:48 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

slapi wrote:
Sem starfsmaður Eðalbíla tala ég aldrei sem slíkur hér inni en mér þykir miður ef þú ert ósáttur , ég hvet þig að hafa samband við okkur sem fyrst og tala við þá helst Bjarka. Það heyrir til undantekninga að einhver fari ósáttur frá okkur og við viljum halda því þannig að fólk sé sátt.
Ég set hann inní málið í fyrramálið.

kv Davíð M

Ég hef líka aldrei heyrt menn tala illa um þjónustuna hjá ykkur, einungis kvartað yfir verðlagningu... en yfirleitt er þetta "you pay for what you get" dæmi...

Hinsvegar þykir mér frekar dubious að lesa af skrifum Einars að rofinn sé enn í kassanum, og að kassinn sé enn innsiglaður :shock:

Author:  Einar Vti [ Thu 07. Mar 2013 23:19 ]
Post subject:  Re: Eðalbílar

Ég tók bílinn inní skúr eftir þessi skrif mín, skipti um rofann og þreif upp throotle boddyið og fékk Bartek til að lesa af bílnum aftur og allar villur farnar og crusið byrjað að virka

hefðu þeir tekið og skipt um rofann STRAX eins og ég bað þá um að gera þegar ég kom með bílinn þá væri þetta öðruvísi mál, tók myndir af pakkningum áður en ég reif allt upp skal senda þetta hér inn.

ég vill bara fá fulla endurgreiðslu fyrir svona asnaskap í mönnum !

Ég fór með bílinn til "fagmanna" þar sem ég er ekki reyndur að fást við BMW og vill ekki að þessi bíll sé skítamixaður en ég ómenntaður aðili gat gert þetta á innan við klukkustund.

Author:  srr [ Thu 07. Mar 2013 23:24 ]

Stundum er bara svo gaman að brasa í þessu sjálfur.

Svo þegar verkinu er lokið og allt virkar,,,,,,,,,"stare and admire" :thup:

Page 4 of 7 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/