bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Viktor / Angelico
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=24&t=40536
Page 1 of 20

Author:  bimmer [ Wed 14. Oct 2009 19:28 ]
Post subject:  Viktor / Angelico

Keypti af mér original pústið undan M5, staðgreiddi, ekkert vesen.

Author:  Djofullinn [ Wed 14. Oct 2009 19:35 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

Í stuttu máli þá skuldar hann mér ennþá fyrir E32 750 sem ég "seldi" honum. 200 þús kall eða svo.
Hann hefur alltaf lofað hinu og þessu og ekkert gerst.
Löngu eftir að hann fékk bílinn ætlaði hann að fara að taka út númerin og fara að nota bílinn en bíllinn var ennþá skráður á mig. Þá vildi hann fá að taka út númerin og skrá tryggingarnar á sig þrátt fyrir að ég væri enn skráður fyrir bílnum.
Ég tók það ekki í mál en þar sem ég á það til að treysta fólki og halda að allir vilji vel þá lét ég hann plata mig í að skrá bílinn á sig, þá borgaði hann reyndar aðeins inn á skuldina.
Ég hef að sjálfsögðu ekki fengið neitt eftir þetta.
Ég hef margsinnis reynt að fá þennan pening, bílinn til baka eða einhverja aðra bíla eða hluti sem hann hefur verið að selja en ekkert hefur gengið.

Author:  Benzari [ Wed 14. Oct 2009 19:50 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

Giska á að negative feedbacks verði í stórum meirihluta hérna, nokkrir þræðirnir komið hérna inn þar sem menn eru búnir að búnir að gefast upp á að tjónka við þennan gaur og skrifa hérna inn til að aðvara aðra.

Author:  Alpina [ Wed 14. Oct 2009 19:53 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

Þórður.. er allt í lagi með þig,,,,,, :shock:

þú veist allt um ferlið og svo dirfistu að koma með eitthvað jákvætt , um mesta úrþvætti og mannleysu sem til er ,, þó að hann hafi keypt eitthvað púst sem hann borgaði

Spurðu Danna Djöful um heilindin á þeim bæ,,

ég er algerlega orðlaus,,

þú telur þetta eflaust sniðugt en þetta er fjarri eitthvað svoleiðis

V.A.G. er hreinlega svo siðblindur í garð annara að öll meðul eru notuð til að fullnægja eða bæta næsta hlut í vitfyrrta og ósvífna draumaverlödina sem umlykur hann

svei attann

Author:  Aron Andrew [ Wed 14. Oct 2009 19:58 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

Þórður hóf allavegana umræðu sem vantaði hér.

Author:  bimmer [ Wed 14. Oct 2009 20:03 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

Aron Andrew wrote:
Þórður hóf allavegana umræðu sem vantaði hér.


Nákvæmlega.

Og umræðan fór akkurat eins og ég bjóst við nema að ég bjóst við að Alpina myndi
eiga fyrsta svarið.

Það sem menn verða að muna - EKKI DÍLA VIÐ VIKTOR NEMA AÐ HANN STAÐGREIÐI!!!!!

Author:  ///M [ Wed 14. Oct 2009 20:11 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

bimmer wrote:
Aron Andrew wrote:
Þórður hóf allavegana umræðu sem vantaði hér.


Nákvæmlega.

Og umræðan fór akkurat eins og ég bjóst við nema að ég bjóst við að Alpina myndi
eiga fyrsta svarið.

Það sem menn verða að muna - EKKI DÍLA VIÐ VIKTOR NEMA AÐ HANN STAÐGREIÐI!!!!!


Hann keypti af mér vél. Þegar hann kom að sækja greiddi hann upphæðina með peningum fyrir utan 5000 krónur útaf því hann átti ekki bensín og þurfti að komast heim :argh:

:lol:

Author:  Djofullinn [ Thu 15. Oct 2009 12:44 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

Djofullinn wrote:
Í stuttu máli þá skuldar hann mér ennþá fyrir E32 750 sem ég "seldi" honum. 200 þús kall eða svo.
Hann hefur alltaf lofað hinu og þessu og ekkert gerst.
Löngu eftir að hann fékk bílinn ætlaði hann að fara að taka út númerin og fara að nota bílinn en bíllinn var ennþá skráður á mig. Þá vildi hann fá að taka út númerin og skrá tryggingarnar á sig þrátt fyrir að ég væri enn skráður fyrir bílnum.
Ég tók það ekki í mál en þar sem ég á það til að treysta fólki og halda að allir vilji vel þá lét ég hann plata mig í að skrá bílinn á sig, þá borgaði hann reyndar aðeins inn á skuldina.
Ég hef að sjálfsögðu ekki fengið neitt eftir þetta.
Ég hef margsinnis reynt að fá þennan pening, bílinn til baka eða einhverja aðra bíla eða hluti sem hann hefur verið að selja en ekkert hefur gengið.

Ég var að fá fregnir af því að bíllinn er kominn á partasölu í kef og verið að rífa hann....
Ótrúlegt að hann hafi ekki manndóm í að skila mér bara flakinu.

Author:  Maddi.. [ Thu 15. Oct 2009 13:47 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

:shock:
Það er fáránlega low...

Author:  Aron Andrew [ Thu 15. Oct 2009 14:09 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

"M5" er líka kominn á partasölu

Author:  batti [ Sun 18. Oct 2009 14:51 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

er hann hættur að stunda kraftinn ?

Author:  Logi [ Sun 18. Oct 2009 15:51 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

batti wrote:
er hann hættur að stunda kraftinn ?

Það lítur út fyrir það, sem betur fer!

Author:  Danni [ Sun 18. Oct 2009 17:03 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

Seldi honum Po-700 á sinum tíma. Gerði þau mistök að afhenda bílinn um leið.
Síðan tók 8 mánuði að fá hann greiddan. Kostaði mig alveg heilan helling af tíma og veseni að standa í þessu.

Author:  saemi [ Sun 18. Oct 2009 23:22 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

Alpina wrote:
Þórður.. er allt í lagi með þig,,,,,, :shock:

þú veist allt um ferlið og svo dirfistu að koma með eitthvað jákvætt , um mesta úrþvætti og mannleysu sem til er ,, þó að hann hafi keypt eitthvað púst sem hann borgaði

Spurðu Danna Djöful um heilindin á þeim bæ,,

ég er algerlega orðlaus,,

þú telur þetta eflaust sniðugt en þetta er fjarri eitthvað svoleiðis

V.A.G. er hreinlega svo siðblindur í garð annara að öll meðul eru notuð til að fullnægja eða bæta næsta hlut í vitfyrrta og ósvífna draumaverlödina sem umlykur hann

svei attann


Hvaða væl er þetta Sveinbjörn, það má nú alveg segja frá því ef menn standa sig í viðskiptum þó svo þeir séu ekki að standa sig í öðrum viðskiptum.

Ég seldi honum drif að mig minnir í E39 M5, þurfti að bíða töluvert eftir peningnum en fékk að endingu greitt.

... mæli samt ekki með öðru en staðgreiðslu í viðskiptum við hann :D

Author:  Tommi Camaro [ Mon 19. Oct 2009 12:41 ]
Post subject:  Re: Viktor / Angelico

Seldi honum Veltan M5 , hann millifærði á mig og fékk m5 .
Hef ekki lent í brasi með hann .

Page 1 of 20 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/