bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Tækniþjónusta Bifreiða
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=24&t=40248
Page 2 of 4

Author:  ///MR HUNG [ Sat 03. Oct 2009 20:47 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

Ég mundi hlægja af þér ef þú mundir saka mig um að eyðileggja ljós við að skipta um peru :lol:

Meira að segja slöngutemjari á bensínstöð gæti ekki drepið ljós við peruskipti.

Author:  IvanAnders [ Sun 04. Oct 2009 04:41 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

///MR HUNG wrote:
Ég mundi hlægja af þér ef þú mundir saka mig um að eyðileggja ljós við að skipta um peru :lol:

Meira að segja slöngutemjari á bensínstöð gæti ekki drepið ljós við peruskipti.

Þetta er skelfileg samlíking hjá þér :lol:

Ég get ekki talið á fingrum handa minna ljósin sem ég hef séð skemmd eftir bensínstoðva-peruskipti!!!

Þá yfirleitt með því að setja peruna skakka í, þannig að hún náði að bræða stæðið!

Getur eflaust spurt hvaða vaktstjóra á bensínstöð sem er, og hann getur sagt þér að þeir hafi þurft að borga út mörg ljós!

Þetta er ástæðan fyrir því að þeir eru ekkert sérlega liðlegir við að skipta um perur í bílum þar sem þröngt aðgengi er að perunum.

Author:  gardara [ Sun 04. Oct 2009 14:11 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

Hmm kannski ég ætti að fá einhvern bensínstöðvakall til þess að eyðileggja ljósin hjá mér, langar í ný :mrgreen:

Author:  Danni [ Sun 04. Oct 2009 17:27 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

Hef verslað alveg helling við TB og það hefur alltaf staðist, hef ekki ennþá fengið sjálfur rangan varahlut en einhvernveginn tekst pabba samt alltaf að fá vitlausan hlut í Opelinn sinn frá þeim :lol:

Eina sem mér finst ábótavant hjá þeim er að lagerinn og tölvan mætti vera í meira samræmi. Ég hef lent í því tvisvar að hringja og spurja hvort einhver hlutur sé til og mér svarað játandi, geri mér síðan ferð úr Keflavík til að kaupa hlutinn en síðan finnst hann hvergi þó að tölvan segir að hann sé til á lager. Þessar tvær fíluferðir hafa valdið því að ég geri mér ekki lengur ferð til þess einungis að fara í TB heldur fer þangað ef ég þarf þess þegar ég er í bænum.

Author:  crashed [ Sun 04. Oct 2009 19:09 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

Danni wrote:

kannast við þetta hjá þeim og bý sjálfur í njarðvík enda er ég farin að byðja þá um að kanna það fyrir mig hvort þeir fynni þetta í hylluni hjá sér :)

Author:  Roark85 [ Mon 05. Oct 2009 10:55 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

Þetta eru allt eðalstrákar,búin að versla við þá í möörg ár og fyrir möörg hundruð þúsund krónur.hafa alltaf komið vel framm við mig og gert sína vinnu vel.

ég er allavega hæstánægður með þá.

Kv Halli

Author:  Logi [ Thu 08. Oct 2009 20:41 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

Ég fór fyrst til Hafþórs árið 2001 með E21 323i sem hafði hvorki gengið né unnið eðlilega eftir mótorupptekt. Hann stillti bílinn og hann var þvílíkt góður á eftir.

Síðan þá hefi ég farið þangað með bíla í viðgerð og keypt slatta af varahlutum bæði í BMW og Benz. Verið mjög sáttur með alla þjónustu og verð :thup:

Author:  Coney [ Thu 08. Oct 2009 20:49 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

ég er búin að eiga viðskipti við TB í aðeins meira en ár núna, ávalt verið sáttur með þjónustuna frá þeim!
og strákarnir hjá Eðalbílnum eru að skipta um vél fyrir mig, lofar góður frá þeim, fæ bílinn afhentan á morgun.

Author:  ///MR HUNG [ Thu 08. Oct 2009 21:00 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

Coney wrote:
ég er búin að eiga viðskipti við TB í aðeins meira en ár núna, ávalt verið sáttur með þjónustuna frá þeim!
og strákarnir hjá Eðalbílnum eru að skipta um vél fyrir mig, lofar góður frá þeim, fæ bílinn afhentan á morgun.
Skuldar mér kók og prins fyrir að redda þér vél :lol:

Author:  SteiniDJ [ Thu 08. Oct 2009 21:08 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

Coney wrote:
ég er búin að eiga viðskipti við TB í aðeins meira en ár núna, ávalt verið sáttur með þjónustuna frá þeim!
og strákarnir hjá Eðalbílnum eru að skipta um vél fyrir mig, lofar góður frá þeim, fæ bílinn afhentan á morgun.

Hljómar spennandi, hvað ertu að setja í bílinn? :)

Author:  Coney [ Thu 08. Oct 2009 21:11 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

///MR HUNG wrote:
Coney wrote:
ég er búin að eiga viðskipti við TB í aðeins meira en ár núna, ávalt verið sáttur með þjónustuna frá þeim!
og strákarnir hjá Eðalbílnum eru að skipta um vél fyrir mig, lofar góður frá þeim, fæ bílinn afhentan á morgun.
Skuldar mér kók og prins fyrir að redda þér vél :lol:

tja bara ef ég hefði keypt flakið strax fyrir það fyrsta, en hvað er að fétta af þessum þokuljósabúnað, er hægt að mixa þetta í minn, ég vil hafa þokuljós sem lýsa en ekki til sýnis :lol:

Author:  Ída [ Thu 08. Oct 2009 21:30 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

Minn gamli bilaði einusinni a milli ´reykjavikur og ísafjarðar, mér var sko reddað! ég lét sækja til þeirra eftir lokun á föstudegi þá varahluti sem þurfti og það var minnsta mál í heimi! hlutunum var svo skutlað til mín :)

Author:  Coney [ Thu 08. Oct 2009 22:20 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

SteiniDJ wrote:
Coney wrote:
ég er búin að eiga viðskipti við TB í aðeins meira en ár núna, ávalt verið sáttur með þjónustuna frá þeim!
og strákarnir hjá Eðalbílnum eru að skipta um vél fyrir mig, lofar góður frá þeim, fæ bílinn afhentan á morgun.

Hljómar spennandi, hvað ertu að setja í bílinn? :)

Lét setja bara það sama í hann, reindar 03' motor en ekin það sama og gamli, stærri aðgerð verður að bíða aðeins, gamli mótorinn fór á stangalegur og sveifarás, svo hann fékk að fjúka ;)

Ef ég fer aftur í mótorskipti þá verður það M pakkinn með meiru en bara vél 8)

Author:  ///MR HUNG [ Thu 08. Oct 2009 22:55 ]
Post subject:  Re: Tækniþjónusta Bifreiða

Coney wrote:
///MR HUNG wrote:
Coney wrote:
ég er búin að eiga viðskipti við TB í aðeins meira en ár núna, ávalt verið sáttur með þjónustuna frá þeim!
og strákarnir hjá Eðalbílnum eru að skipta um vél fyrir mig, lofar góður frá þeim, fæ bílinn afhentan á morgun.
Skuldar mér kók og prins fyrir að redda þér vél :lol:

tja bara ef ég hefði keypt flakið strax fyrir það fyrsta, en hvað er að fétta af þessum þokuljósabúnað, er hægt að mixa þetta í minn, ég vil hafa þokuljós sem lýsa en ekki til sýnis :lol:

Þú keyptir vél af þeim sem fékk vél hjá mér s.s gömlu vélina hans.
Það er svo spuring hvað þig vantar í þetta ljósadæmi.Það er allt til en ég efast nú að þér vanti allt ruslið.

Author:  Coney [ Thu 08. Oct 2009 23:02 ]

já ég var meðvitaður um það, ég meinti ég hefði átt að kaupa gamla halla þegar hann var á góður verði með öllu, sá mest eftir því.

Ég verð bara að kíkja á þetta með þokuljósin við tækifær, veit ekki nákvæmlega hvað mer vantar en það er eitthvað.

Page 2 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/