bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 29. Mar 2024 09:17

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 23 posts ]  Go to page 1, 2  Next
Author Message
 Post subject: Gstuning
PostPosted: Tue 22. Sep 2009 19:41 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Jæja... ég gæti skrifað heila ritgerð núna! :lol:

Á sínum tíma þá festi ég kaup á bíl sem að Gunni var ekki búinn að smíða. Festi kaup á bílnum í júlí/ágúst minnir mig.

Bíllinn átti að vera 332(m30b32) og tilbúinn í nóv/des.

Gunni lennti í endalausu veseni með þennan bíl. Vélin sem hann ætlaði að nota var dauð minnir mig þannig að hann átti aðra m30b35 sem við ákváðum að nota(sú vél var reyndar líka ónýt en það kom í ljós seinna).

Gunni swappaði í hann m30b35, tengdi standalone og lét mála allan bílinn.

Mig minnir að ég hafi fengið bílinn í hendurnar í lok júní árinu á eftir. Mér var svosem alveg sama um biðina, allt í góðu þar.

Seinna kom í ljós að vélin var ónýt, Einar Óli staðfesti það og Gunni endurgreiddi mér part af kaupverðinu á bílnum.

Standaloneið sem Gunni tengdi hefur lengi lengi verið með vesen. Gunni hefur eytt ótrúlega miklum tíma í að reyna koma þessu í lag og nær oftast að gera þetta aðeins betra og aðeins betra.. hann er ennþá að spá í leiðum til að ná þessu eins vel og hægt er. Hann hefur aldrei kvartað né kveinað þegar ég hef beðið hann um hjálp.. alltaf mætt með tölvuna og byrjað að mappa. Get varla talið skiptin sem við höfum verið að blasta á krísuvíkurveginum/reykjanesbrautinni :lol:
Næst þegar hann kemur heim verður þetta vonandi klárað!

Cliff notes: Búið að ganga upp og niður en Gunni alltaf staðið sig og verið ótrúlega duglegur að hjálpa mér.
Erum orðnir mjög góðir vinir í dag, þekkti hann ekkert fyrir viðskiptin :thup:

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Tue 22. Sep 2009 19:49 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15127
Location: Spenge, DE
Takk,
Það sem þig misminnir er að við ætluðum að gera 333i með standalone. Enn ég átti B34 og ég man ekki hvaða tölu aukalega ég seldi þér hana á enn það var í raun merkilega tímafrek ákvörðun. Því hin hefði getað farið beint ofan í. Enn við ákváðum að finna B35 knastás og hvaðeina til að reyna hressa uppá hana. Það var nokkuð tímafrekt.

Þetta er eina standalone innstallið sem ég vildi að ég hefði verið búinn að læra það sem ég kann núna.
Svoleiðis súrt að hugsa til þess að ég í alvöru mappaði megnið af bílnum hans stjána með alveg sömu tölvu bara fyrir utan hjá honum og einhverju nokkrum rúntum í götunni. Á meðan við erum búnir að eyða alveg mögnuðum tíma í að reyna tjúna hana
eins og hún "á" að vera tjúnuð.

Enn það er ekkert standalone innstall sem ég hef gefist uppá ennþá. Og það er bara ótrúlega lítið sem við þurfum að gera
svo hann sé daily þolanlegur í akstri. Ekki nema tjúna og færa EINN vír :)

EDIT.
Og tölvan sem við settum í hann fyrst, var svo ekkert 6cyl tölva þótt að framleiðandinn auglýsti hana svoleiðis. Það þurfti þá að panta aðra tölvu.

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Tue 22. Sep 2009 19:53 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Já ég hlakka mjög mikið til þegar þú kemur næst heim og kíkir á hann. Endilega reyna að ná honum ennþá betri.

En þetta er nú vonandi bara búin að vera fín æfing fyrir þig... búinn að eyða fáránlegum tíma í að tjúna hann :lol:

Ps. Auðvitað átti þetta upphaflega að vera 333, gleymdi því.

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Tue 22. Sep 2009 20:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Thu 08. May 2008 22:17
Posts: 4849
Location: Hfj City
Rosalega eruð þið góðir við hvorn annan :)

On topic:

Ég keypti bíl af gstuning, engin vandamál og ekkert vesen.

_________________
Benedikt Guðmunds. 615-2630
The Small : BMW Z3 '97 , The Big : BMW X5 4.4i us '00 & The Beater : BMW X5 4.4i '01

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Tue 22. Sep 2009 20:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 28. Jun 2005 23:13
Posts: 12513
Location: Bitch viltu dick?
Hef keypt ýmislegt í gegnum Gunna og allt staðist.

Ég er mest sáttur við kaupin á VEMS tölvunni, ísetningu og tjún. Kappinn er alveg hrikalega áhugasamur og hjálpfús með allt þetta hjá mér og er búinn að fara hellingstími í að tjúnna, breyta kerfinu og endurtjúnna. Hann er ennþá að fara yfir logga og betrum bæta mappið. Ávallt til í að svara aulaspurningum um standalone, túrbó og í rauninni hvað sem manni dettur í hug varðandi bíla.

Topp náungi :thup:

_________________
Fullt af CF sem rúllar


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Tue 22. Sep 2009 23:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Tue 13. Jan 2004 23:15
Posts: 11549
Location: Reykjavík
Keypti á sínum tíma 60/40 KW dempara og gorma í E36 320ia sem ég átti af GSTuning bræðrum. Verðið var gott á þeim tíma og þeir komu til mín og smelltu þessu meira segja í bílinn fyrir smá auka klink. Þetta var á þeim tíma þegar maður kunni ekkert að græja og gera. Topp þjónusta og þeir voru enga stund að þessu.

Svo langar mig að taka undir það sem Einar segir, Gunni gst er alltaf tilbúinn til að svara þeim spurningum sem maður hefur á msn/pm etc. Toppnáungi sem gott er að eiga að þegar maður að pæla í BMW.

:thup: :thup:

_________________
Image
BMW E30 328i Coupe


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Tue 22. Sep 2009 23:39 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Haha núna FYLLIST pm inboxið hans Gunna :lol:

Heppinn.

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Wed 23. Sep 2009 03:48 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 01. Sep 2002 22:50
Posts: 15127
Location: Spenge, DE
Núna?

ég er búinn að vera með fullt innbox síðan alltaf.
Enn ég reyni að benda mönnum á að pósta á kraftinn því að það séu margir hérna
sem geta alveg svarað því sem ég get.

Og það er næstum búið að svara öllu og því hægt að finna svarið með því að leita.
Sumu nenni ég að svara , ef það er tjún tengt helst :)

_________________
With great challenges comes great engineering.
Gunnar Reynisson
Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Wed 23. Sep 2009 13:16 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 20. Jul 2007 13:51
Posts: 1833
Location: Rkv
Keypti KW dempara og gorma í gegnum GSTuning. Það gekk bara vel, flott verð og ég var mjög sáttur! :thup:

_________________
E39M5
A35AMG


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Wed 23. Sep 2009 14:10 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 04. Jun 2006 14:39
Posts: 4778
Keypti af honum coilovers.. Borgaði honum og hann lét mig hafa þá..

síðan reyndust 4 tommu gormarnir vera of stuttir þannig að hann lét mig bara hafa 6tommu sem hann átti þarna :thup: :thup: :thup:

_________________
BMW E34 ///M5


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Wed 23. Sep 2009 18:26 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sun 18. Apr 2004 14:05
Posts: 3213
Location: Akureyri
Hef nú nokkrum sinnum verslað við Gunna.

Keypti hjá honum poly fóðringar í bílinn hjá mér.

Einhvertíman keypti ég víst hjá honum líka coilovers í e30 sem hann geymdi fyrir mig á meðan ég seldi þá áfram því ég grandaði bílnum alveg óvart :lol:


Svo ekki sé minnst á að eitt skipti er ég var fyrir sunnann í vandræðum með kælinguna á bílnum þá barasta gaf hann mér þennann fína viftuspaða til að nota ef hann skildi passa. :thup: Reyndar passaði ekki, en það skiptir ekki máli. Hann er enþá til einhverstaðar ef þig langar í hann aftur :wink:

_________________
Jón M
S: 693-9796
WET Motorsport - Vara og aukahlutir í bíla, vélar og tæki

Ford Bronco '66

Bara station bílar, enginn BMW.


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Wed 23. Sep 2009 21:09 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Mon 26. Sep 2005 00:12
Posts: 5955
Location: Litla Ameríka
Hann skipti um vökvaundirlyftur í M40B18 fyrir mig og svo verslaði ég af honum nýja KW framdempara og að sjálfsögðu skellti hann þeim í líka í leiðinni, topp þjónusta og top notch verð :thup:

_________________
Nútíðin:
E34 Touring '93 > R.I.P.
E34 530iT '95

Þátíðin:
E32 735i '89 ND-020
E30 325iC '89 AN-309
E30 318i '88 JS-554
E34 525iA '94 OZ-390
E28 518i '87 IT- 629
E46 318i '00 TB-590


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Wed 23. Sep 2009 22:07 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 27. Feb 2005 12:51
Posts: 4491
Location: Að rústa öllum í sjómann....
Keyfti af honum KW fjöðrun í Gamla 525 bíllinn minn.

Get voða lítið sagt um það annað en það gékk vel fyrir sig og ég var bara sáttur :)

_________________
hafa verður í huga að hann er vanur lygari sem hefur lifibrauð sitt af því að ljúga því að trúgjörnum vitleysingum að til sé karl upp í skýjunum sem fylgist með öllu sem fólk gerir og skráir samviskusamlega niður,til að nota gegn því eftir að það deyr


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Thu 24. Sep 2009 23:27 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Wed 14. Dec 2005 19:56
Posts: 9115
Location: Breiðholt, Reykjavík
Keypti af honum KW afturdempara á mega flottum prís. Allt solid. :thup:

_________________
Axel Jóhann Helgason. S. 695-7205


E34 Touring
Musso 2.9TDi

Image


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject: Re: Gstuning
PostPosted: Tue 13. Oct 2009 19:54 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11977
Location: ::1
Hann Gunni hefur svarað ótal mörgum spurningum fyrir mig í sambandi við swappið mitt, fjöðrunarpælingar og annað

Hjálpaði mér líka að koma bílnum í gang :)

Gunni og auðvitað Stefaán GSTuning eru ekkert nema snillingar

_________________

VW Golf GTi Cabriolet
VW Golf GTi MK4


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 23 posts ]  Go to page 1, 2  Next

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 7 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group