bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Akstursæfing DDA 11.júlí https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=66719 |
Page 1 of 1 |
Author: | siggigunni [ Wed 09. Jul 2014 11:28 ] |
Post subject: | Akstursæfing DDA 11.júlí |
Akstursæfing DDA 11. Júlí 2014 ![]() Umgengni á svæðinu hefur verið til háborinnar skammar undanfarið og viljum við því ítreka nokkra hluti! -Reykingar eru stranglega bannaðar! -Meðferð áfengra drykkja er stranglega bönnuð! -Stranglega bannað er að henda rusli! -Þeir sem fara útaf þurfa að láta vita og hjálpa til að sópa eftir sig! Ef ekki er farið eftir þessum reglum verður fólk einfaldlega bannað frá því að mæta á viðburði hjá DDA. Allar tegundir af bílum velkomnar, sama hvort þeir séu fram-, aftur- eða fjórhjóladrifnir. Hvort sem fólk vill spóla eða æfa brautarakstur. Brautin opnar kl. 19:00 og hættum við að keyra um kl. 22:00 Þau skilyrði sem bíll og ökumaður þurfa að uppfylla: • Bíll með fulla skoðun. • Gilt ökuskírteini. • Löglegur hjálmur. • Viðkomandi þarf að vera meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ. • Nagladekk eru stranglega bönnuð. • Tryggingaviðauka!, enginn viðauki þýðir að þú færð ekki að keyra!! *ATH* Rallýcrossmenn sem vija koma og æfa þið þurfið að hafa eftirfarandi í huga: • Mæta með belti, búr og annað á bílnum í lagi. • Mæta klæddir eins og þið séuð að fara að keyra í keppni! • Við keyrum aðeins malbik, Vinsamlegast virðið það! • Hjálpa til að sópa og slíkt. • Ekki skera beygjur eins og brjálæðingar þó svo að við nennum ekki að setja upp tunnur! • Vera skráðir í klúbb hjá AÍH Ef þú keyrir útaf eða verður eitthvernvegin þess valdur að það fari möl á brautina, stoppaðu og hjálpaðu til að sópa! það verður hellings rennerí og óþolandi að það komi í hlut tveggja manna að sópa eftir alla, það styttir líka biðtíma! ******ATH****** Hafið samband við ykkar tryggingafélag og fáið hjá þeim tryggingaviðauka, þó svo að þeir segji að þess þurfi ekki þá er það ekki satt. ENGINN keyrir án viðauka!! ![]() Farþegar eru leyfðir og þurfa einnig að vera með löglegan hjálm. Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið. Miðasala fer fram uppá braut, Vinsamlegast komið með seðla. Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum. Það keyrir enginn án miða! Hægt er að kaupa æfingapassa fyrir sumarið, hann kostar 15.000kr Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig: http://www.drift.is/skraningifelagid.php (síðan liggur niðri svo annað hvort millifæra eða borga á staðnum) Árgjaldið er það sama og í fyrra 5000 kr. Hægt að millifæra eða borga uppá braut, fyrsta æfing er frí! Ef þið millifærið munið að koma með kvittun! Séu þið skráðir í annað félag verðið þið að mæta með skírteini eða kvittun þess efnis! Driftdeild AÍH Bnknr. 322-26-25262 Kt. 450109-0880 Áhorfendur athugið: Vinsamlegast leggið bílum ykkar hægramegin við brautina og gangið svo að áhorfendasvæði Áhorfendum er einning frjálst að ganga niður í pitt Vinsamlegast keyrið varlega á malarveginum uppá braut. ![]() Rauðu svæðin tákna þau svæði sem áhorfendum er frjálst að vera á og leggja, blá svæðið er pitturinn og þar eiga einungis bílar að leggja sem ætla að keyra! vinsamlegast virðið það. Brot á þessum og öllum reglum DDA varðar brottvísun af svæðinu! Fyrir þá sem ekki vita hverning komast skal á leiðarenda. ![]() Mjög góð mæting búin að vera og frábær stemning: [url] [/url] ![]() Fyrir hönd DDA. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |