Aðalfundur DDA 2013
Aðalfundur Driftdeildar AÍH verður haldinn Laugardaginn 2. nóvember næstkomandi kl. 16:00. í íþróttarhúsinu Álfafelli við Strandgötu í Hafnarfirði. Allir driftarar og áhugafólk hvatt til að mæta, framtíð félagsins veltur á því. Fólk með tillögur að breytingum einnig hvatt til þess að koma þeim framfæri á fundinum, svo hægt sé að ræða þær og kjósa um.
Dagskrá:
1. Setning
2. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu
3. Gjaldkeri gefur skýrslu
4. Kosning stjórnar 2014
5. Tillögur að breytingum ræddar
6. Önnur mál
7. Fundarslit
Í framhaldinu ætlum við að hafa bjórkvöld á Classic Rock í Ármúlanum, mæting þangað um 20:00 og ætlum við að bjóða greiddum meðlimum uppá svoldinn öl, ólimir hinsvegar velkomnir líka!
