bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 28. Apr 2024 11:42

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 2 posts ] 
Author Message
PostPosted: Mon 05. Aug 2013 19:35 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Mon 01. Mar 2010 21:45
Posts: 102
Þriðja Íslandsmeistarakeppni í Drifti fer fram á Akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg Laugardaginn 10. ágúst.
Image
http://www.flickr.com/photos/danniornsmarason/
Keppni hefst kl 16:00 og það kostar 500 kr inn fyrir áhorfendur. (frítt fyrir 12 ára og yngri)
Áhorfendur leggjið við áhorfendasvæði!, öll umferð um pitt eða braut er stranglega bönnuð!
Haldið ykkur við leyfileg áhorfendasvæði( þau eru merkt!)


Dagskrá:

14:00 Dómarar gefa út svæðið og æfingar hefjast.
15:30 Æfingum lýkur og hádgishlé hefst
16:00 Undankeppni hefst
17:00 Útsláttarkeppni hefst

Það er frjáls mæting fyrir keppendur á æfinguna, en þó þurfa þeir að vera mættir fyrir kl 15:30



Skráning er hafin.
Til að skrá sig þarf að senda mail á drift@drift.is


Í mailinu þarf að koma fram:

Nafn ökumanns:
Bílnúmer ökutækis:
Gerð ökutækis:
Símanúmer ökumanns:
símanúmer og nafn aðstandanda:

keppnisgjaldið eru litlar 4.000kr og leggjast þær inn á:
Rkn: 545-14-404231
Kt: 611002-2030
vinsamlegast sendið afrit á okkur.


Skráningu lýkur kl 15:00 föstudaginn 09. ágúst.

Til að keppa þarf eftirfarandi að vera í lagi!!:

Bíll með fulla skoðun, ef hann er með endurskoðun má ekki vera sett út á
öryggisatriði og við höfum fullan rétt á að vísa bílum frá í vafamálum.

Mæta með löglegan hjálm(þarf að vera þræddur)
Mæta með ökuskírteini!(þetta er no brainer!)
vera félagi í einhverju af aðildarfélögum ÍSÍ (t.d. BA, DDA, RCA, KK)
Vera með Tryggingaviðauka*!
Vera með keppnisskírteini frá ÍSÍ

*Tryggingafélagið þitt gæti sagt þér að þú þurfir ekki viðauka, þetta er ekki satt og krefðu þá um að fá það skriflegt að þú þurfir hann ekki, annars skaltu krefja þá um viðauka. Hann er ekki fyrir bílinn þinn eða neitt svoleiðis heldur til þess að tryggja það tjón sem þú gætir valdið á fólki!. Hann er mjög mikilvægur!!!


Við vekjum athygli á því að kaupa þarf keppnisskírteini frá ÍSÍ

hér er það keypt: http://www.asisport.is/umsoknir/keppnisskirteini/

Og prenti svo út kvittun fyrir greiðslunni og mæti með í keppni.
Eða sendið hana á tölvupóst.
Til að útskýra aðeins verðskránna þeirra:
Keppendur á ökutæki sem er:
1) skráð hjá Samgöngustofu til notkunar í almennri umferð
2) er fullskoðað og stenst bifreiðaskoðun á keppnisstað
3) hefur gildan tryggingarviðauka til þátttöku í aksturkeppni
að greiða sem hér segir:
i. kr. 5.000 í upphafi fyrir ákveðna keppni og gildir í hana eingöngu
ii. endurnýjun fyrir keppni eftir fyrstu kr. 1.500 í hvert sinn. *)

þú borgar 5000 fyrir fyrstu keppnina og svo 1500kr fyrir hverja keppni eftir það.
Ef þú ert nýliði kaupir þú nýliðaskírteini:
Nýliðaskírteini (aldrei keppt áður) - Gildir til 31. desember útgáfuárs 4000
ATH þeir sem keyptu skírteini á 15.000kr geta fengið það endurgreitt hjá AKÍS!
Þeir sem borguðu um daginn eiga inni hjá okkur keppnisgjald


Ef einhverjar spurningar koma upp er um að gera að spyrja hér á þræðinum, pm, á facebook, eða tölvupóst!

Driftdeildin: http://www.drift.is
Driftdeildin á facebook : https://www.facebook.com/pages/Driftdei ... 51?fref=ts
Kv. Sigurður Gunnar Sigurðsson
email: sigurdur@drift.is
fh. Driftdeildar AÍH

_________________
'06 mazda 3
'83 MB 190e 2.6 esab
stjórnarmeðlimur í drift deild AÍH


Last edited by siggigunni on Fri 09. Aug 2013 23:50, edited 2 times in total.

Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Tue 06. Aug 2013 11:11 
Offline
Kassabílstjóri

Joined: Mon 01. Mar 2010 21:45
Posts: 102
*****ATH****** keppni færist aftur um 3 tíma, sjá meira í póstinum!

_________________
'06 mazda 3
'83 MB 190e 2.6 esab
stjórnarmeðlimur í drift deild AÍH


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 2 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: Google [Bot] and 34 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group