bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Akstursæfing DDA Föstudaginn 5.Apríl.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=60793
Page 1 of 1

Author:  siggigunni [ Wed 03. Apr 2013 10:42 ]
Post subject:  Akstursæfing DDA Föstudaginn 5.Apríl.

Akstursæfing DDA 5. Apríl 2013
Image
Síðast mættu fleirri en við áttum von á, aðeins eitt að gera Allir að mæta!, sama hvort ætlunin er að keyra eða ekki.

Allar tegundir af bílum velkomnar, sama hvort þeir séu fram-, aftur- eða fjórhjóladrifnir.
Hvort sem fólk vill spóla eða æfa brautarakstur.
Brautin opnar kl. 18:00 og hættum við að keyra um kl. 22:00
Þau skilyrði sem bíll og ökumaður þurfa að uppfylla:
• Bíll með fulla skoðun.
• Gilt ökuskírteini.
• Löglegur hjálmur.
• Viðkomandi þarf að vera meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
• Nagladekk eru stranglega bönnuð.





******ATH*******
Hafið samband við ykkar tryggingafélag hvort þið þurfið tryggingaviðauka!, þetta er á ykkar ábyrgð og er mjög mikilvægt.


Farþegar eru leyfðir og þurfa einnig að vera með löglegan hjálm.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram uppá braut, Vinsamlegast komið með seðla.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Það keyrir enginn án miða!

Hægt er að kaupa æfingapassa fyrir sumarið, hann kostar 15.000kr

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
(síðan liggur niðri svo annað hvort millifæra eða borga á staðnum)
Árgjaldið er það sama og í fyrra 5000 kr.
Hægt að millifæra eða borga uppá braut, fyrsta æfing er frí! Ef þið millifærið munið að koma með kvittun!

Driftdeild AÍH
Bnknr. 322-26-25262
Kt. 450109-0880



Áhorfendur athugið:
Vinsamlegast leggið bílum ykkar hægramegin við brautina og gangið svo að áhorfendasvæði
Áhorfendum er einning frjálst að ganga niður í pitt
Vinsamlegast keyrið varlega á malarveginum uppá braut.


Brot á þessum og öllum reglum DDA varðar brottvísun af svæðinu!

Fyrir þá sem ekki vita hverning komast skal á leiðarenda.
Image

Það er von á fjöri!:
[url]
[/url]
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Fyrir hönd DDA.

Author:  eiddz [ Thu 04. Apr 2013 21:16 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA Föstudaginn 5.Apríl.

Hverjir ætla að mæta og tæta upp dekk?
Ég kemst allavega ekki :argh:

Author:  burger [ Fri 05. Apr 2013 02:42 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA Föstudaginn 5.Apríl.

mæti en bara til að horfa :(

Author:  odinn88 [ Fri 05. Apr 2013 11:55 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA Föstudaginn 5.Apríl.

mæti til að horfa í þetta skiptið en vonandi til ad spóla eftir viku

Author:  Angelic0- [ Fri 05. Apr 2013 18:49 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA Föstudaginn 5.Apríl.

Fendsen... var að kveikja á þessu núna...

Verður æfing næsta föstudag líka :?:

Langar að koma og spóla smá á E36 áður en ég sel hann :)

Author:  siggigunni [ Sun 07. Apr 2013 15:10 ]
Post subject:  Re: Akstursæfing DDA Föstudaginn 5.Apríl.

Jább, getið búist við æfingum á hverjum föstudegi héðanaf í sumar, svo framarlega að við auglýsum að þær verði ekki.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/