bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Verslunarmannaæfing DDA 3. ágúst 2012 https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=57640 |
Page 1 of 1 |
Author: | rufuz [ Wed 01. Aug 2012 17:49 ] |
Post subject: | Verslunarmannaæfing DDA 3. ágúst 2012 |
![]() Akstursæfing DDA 3. ágúst '12. Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn! Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip! ![]() *Mynd frá Sæma Boom Brautin opnar kl. 18:00 og við hættum að keyra í síðasta lagi kl. 22:00. Síðasta föstudag lokaði ég kl. 21, vegna þess að það var enginn á svæðinu. Reynið að mæta snemma! Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega. Það sem þarf til að fá að keyra er:
● Gilt ökuskírteini. ATH! Þið þurfið að sýna ökuskirteini á staðnum. ● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ. ● Löglegur hjálmur. ● Nagladekk stranglega bönnuð. Farþegar eru leyfðir. Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið. Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum. Við tökum við greiðslum upp á braut, posi á staðnum. [insert strækþrú effekt] Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig: http://www.drift.is/skraningifelagid.php [end strækþrú effekt] ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 5000 kr. Vefsíðan liggur niðri, svo ef fólk vill skrá sig í félagið, þá verður það að gera það upp á braut. Þar sem posinn á staðnum verður fyrir brautargjaldið sem rennur til AÍH, þá verður að borga DDA skráninguna með BANDBRJÁLUÐU FÉI. ![]() Semsagt: 1. Þú ert ný(r). 2a. Þú ert nýkomin(n) með bílpróf og/eða... 2b. Þú uppgötvar að þú hefur gaman að því að keyra hratt. 3. Þú ferð í hraðbankann. 4. Þú tekur út 5000 kr. í reiðu fé. 5. Þú ekur upp á braut til okkar á föstudagskvöldið. 6. Þú greiðir okkur þessar 5000 kr. og ert þar með gengin(n) í DDA. 7. Þú greiðir starfsmanni AÍH 1000 kr. með pening eða korti. 8. Þú setur hjálm á hausinn. 9. Þú spennir beltið. 10.-99. Þú reykspólar inn í nóttina. Muna svo: Það kostar ekkert að koma og fylgjast með. Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendur eru þó hvattir til að koma gangandi niður í pitt. Keyra varlega á malarveginum upp að braut. Koma með sólina og góða skapið. F.h. DDA. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |