bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Akstursæfing DDA 20. júlí https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=57471 |
Page 1 of 1 |
Author: | RJR16 [ Wed 18. Jul 2012 18:59 ] |
Post subject: | Akstursæfing DDA 20. júlí |
Akstursæfing DDA 20. júlí 2012. Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn! Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip! ![]() *Mynd frá Sæma Boom Brautin opnar kl. 18:00 og við hættum að keyra um kl. 22:00. Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega. Það sem þarf til að fá að keyra er: ● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun. ● Gilt ökuskírteini. ● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ. ● Löglegur hjálmur. ● Nagladekk stranglega bönnuð. Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki. Farþegar eru leyfðir og þurfa einnig að vera með löglegan hjálm. Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið. Miðasala fer fram uppá braut, öruggast að mæta með seðla. Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum. Það keyrir enginn án miða! Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig: http://www.drift.is/skraningifelagid.php ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 5000 kr. Muna svo: Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendum er þó frjálst að koma gangandi niður í pitt. Keyra varlega á malarveginum upp að braut. Koma með sólina og góða skapið. F.h. DDA. |
Author: | rufuz [ Wed 18. Jul 2012 22:43 ] |
Post subject: | Re: Akstursæfing DDA 20. júlí |
![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |