Akstursæfing DDA 1. júní '12.
Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!

*Mynd frá Sæma Boom
Brautin opnar kl. 18:00 og við hættum að keyra í síðasta lagi kl. 22:00.
Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.
Það sem þarf til að fá að keyra er:
- ● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
● Gilt ökuskírteini. ATH! Þið þurfið að sýna ökuskirteini á staðnum.
● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
● Löglegur hjálmur.
● Nagladekk stranglega bönnuð.
Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum. Við tökum við greiðslum upp á braut, posi á staðnum.
ATH! Þetta er bara hefbundin æfing. Æfingin fyrir keppendurna í keppninni á laugardaginn er á laugardeginum.
Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 5000 kr.
Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendum er þó frjálst að koma gangandi niður í pitt.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með sólina og góða skapið.
F.h. DDA.

