bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Skráning í driftkeppni DDA 2. júní
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=56770
Page 1 of 1

Author:  rufuz [ Sat 26. May 2012 04:08 ]
Post subject:  Skráning í driftkeppni DDA 2. júní

Image

Skráning er hafin í fyrstu driftkeppni sumarsins (aftur) þann 2. júní. Skráning fer fram HÉR.
Keppnisgjald er 4000kr.
Skráningu lýkur á föstudaginn 1. júní kl 15:00.

Til að keppa þarf að vera félagi í einhverju af aðildarfélögum ÍSÍ (t.d. BA, DDA, RCA, KK). Skráning í DDA fer fram HÉR.

Við vekjum athygli á því að kaupa þarf keppnisskírteini frá ÍSÍ. Það má gera HÉR.
Þar sem keppendur verða örugglega ekki komnir með skirteinið í hendurnar fyrir keppni, þá verða keppendur að mæta með afrit af greiðslunni.

Ef einhver ætlar að skrá sig í keppni sérútbúna (twin drift), þá þarf sá að láta okkur vita. Við þurfum að fá minnst fjóra keppendur í þann flokk til að hægt sé að keyra hann.

Þeir sem borguðu fyrir keppnina sem átti að vera 12. maí síðastliðinn, þurfa að sjálfsögðu ekki að borga aftur. Það væri samt rosalega fínt ef þeir myndu skrá sig aftur, svo við vitum nú hvort menn ætli að keppa.

ATH! Þetta verður kvöldkeppni. Nákvæmari tímasetningar auglýstar síðar.


...já og okkur vantar dómara.

F.h. DDA.

Author:  rufuz [ Wed 30. May 2012 19:46 ]
Post subject:  Re: Skráning í driftkeppni DDA 2. júní

Okkur vantar enn 2 dómara. Pizza og front row seats í boði. :thup:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/