Lindemann wrote:
Eftirlitið er gott og gilt, en það á ekki að þurfa að "stöðva" keppni útaf svona!
Þegar er búið að auglýsa keppni sem er ekki leyfi fyrir, þá ætti að grípa inní.
Ég stend nú enn í þeirri meiningu að þeir hafi ekki leyfi til að stöðva keppni þar sem þeir hafa ekki leyfi til að gefa út keppnisleyfi.
Þú mátt standa í þinni meiningu eins og þú villt en hún er bara ekki rétt hjá þér og tek ég nokkra punkta hér fyrir þig.
2. gr.
Gildissvið.
Aksturskeppni er íþróttagrein stunduð á vegum eftirtalinna aðila:
Aðildarfélaga innan Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands (MSÍ) vegna keppni á tveggja og þriggja hjóla ökutækjum og torfæruhjólum.
Aðildarfélaga innan Landsambands íslenskra akstursíþrótta (LÍA) vegna keppni á ökutækjum með fjórum hjólum eða fleiri.
Annarra félaga sem eiga aðild að akstursíþróttanefnd ÍSÍ, Íþróttasambands Íslands.
4. gr.
Verklagsreglur.
Ríkislögreglustjóri setur verklagsreglur, byggðar á alþjóðlegum reglum um aksturs íþróttir, sem hafðar skulu til hliðsjónar við veitingu leyfa skv. 3. gr.
http://logregla.is/upload/files/20080407155251413.pdf5. gr.
Umsögn.
Með umsókn um leyfi til lögreglustjóra til að halda aksturskeppni skal fylgja umsögn LÍA, akstursíþróttanefndar eða sérsambands á vegum ÍSÍ eða LÍA í samræmi við tegund keppni.
Í umsögninni komi fram faglegt mat á öryggisþáttum og tillögur um framkvæmd og eftirlit á keppnisstað í samræmi við verklagsreglur, sbr. 4. gr.
Ef ekki lægu þessar reglur fyrir fengjum við ekki að aka á brautinni hjá okkur og til að benda á það eftirlit sem er með okkur þá ók próflaus maður á æfingu hjá Driftdeildinni og þá fékk formaður AÍH símtal frá lögreglu varðandi það mál sem einfaldlega sýnir að full þörf er á eftirliti.
Kv Gunnar