bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sat 27. Apr 2024 19:56

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 64 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5
Author Message
PostPosted: Wed 16. May 2012 15:05 
Offline
Meðlimur Meðlimur
User avatar

Joined: Mon 02. Feb 2004 15:03
Posts: 3465
Location: norður í rassgati
Gunnar, lestu betur kaflann um umsagnaraðila og eftirlit í verklagsreglunum.

Þetta skiptir samt ekki höfuðmáli í þessu tilfelli, auðvitað viljum við allir að farið sé eftir reglum og öll leyfi séu til staðar.
Mestu skiptir að það sé komið í veg fyrir að svona lagað gerist aftur.

_________________
kv. Jakob B. Bjarnason


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Wed 16. May 2012 17:59 
Offline
Getawaybílstjóri

Joined: Mon 05. Jun 2006 23:36
Posts: 523
Location: Rvk
Gunnar H wrote:
Lindemann wrote:
Eftirlitið er gott og gilt, en það á ekki að þurfa að "stöðva" keppni útaf svona!

Þegar er búið að auglýsa keppni sem er ekki leyfi fyrir, þá ætti að grípa inní.

Ég stend nú enn í þeirri meiningu að þeir hafi ekki leyfi til að stöðva keppni þar sem þeir hafa ekki leyfi til að gefa út keppnisleyfi.


Þú mátt standa í þinni meiningu eins og þú villt en hún er bara ekki rétt hjá þér og tek ég nokkra punkta hér fyrir þig.

2. gr.
Gildissvið.
Aksturskeppni er íþróttagrein stunduð á vegum eftirtalinna aðila:

Aðildarfélaga innan Mótorhjóla- og snjósleðaíþróttasambands Íslands (MSÍ) vegna keppni á tveggja og þriggja hjóla ökutækjum og torfæruhjólum.
Aðildarfélaga innan Landsambands íslenskra akstursíþrótta (LÍA) vegna keppni á ökutækjum með fjórum hjólum eða fleiri.
Annarra félaga sem eiga aðild að akstursíþróttanefnd ÍSÍ, Íþróttasambands Íslands.

4. gr.
Verklagsreglur.
Ríkislögreglustjóri setur verklagsreglur, byggðar á alþjóðlegum reglum um aksturs íþróttir, sem hafðar skulu til hliðsjónar við veitingu leyfa skv. 3. gr.

http://logregla.is/upload/files/20080407155251413.pdf

5. gr.
Umsögn.
Með umsókn um leyfi til lögreglustjóra til að halda aksturskeppni skal fylgja umsögn LÍA, akstursíþróttanefndar eða sérsambands á vegum ÍSÍ eða LÍA í samræmi við tegund keppni.

Í umsögninni komi fram faglegt mat á öryggisþáttum og tillögur um framkvæmd og eftirlit á keppnisstað í samræmi við verklagsreglur, sbr. 4. gr.


Ef ekki lægu þessar reglur fyrir fengjum við ekki að aka á brautinni hjá okkur og til að benda á það eftirlit sem er með okkur þá ók próflaus maður á æfingu hjá Driftdeildinni og þá fékk formaður AÍH símtal frá lögreglu varðandi það mál sem einfaldlega sýnir að full þörf er á eftirliti.

Kv Gunnar


hérna er nú ein enn grein úr þessari reglugerð.....

Quote:
6. gr.
Framkvæmd aksturskeppni.
Keppnishaldari kynnir keppendum keppnisreglur og skilmála keppnisleyfis áður en keppni fer fram. Fari keppnishaldari ekki eftir reglum getur lögreglan hvenær sem er stöðvað framkvæmd keppni.

Sækja skal um leyfi til lögreglustjóra fyrir aksturskeppni a.m.k. 5 dögum fyrir keppni, enda fylgi með tilskilin gögn.


ísí nefndin má ekki stöðva keppni.. lögreglan er sú eina sem hefur það vald!... alla veganna samkvæmt þessari reglugerð

hér er reglugerðin fyrir áhugasama http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/We ... 2/507-2007

_________________
Jón Bjarni
BMW 530D E-39 2002 MR.X :twisted:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 25. May 2012 19:59 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Sat 03. May 2003 18:34
Posts: 1610
Sælir drengir. Hvenær byrjar keppnin á laugardaginn eftir viku?


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 25. May 2012 22:00 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 25. May 2003 23:50
Posts: 11977
Location: ::1
Kristjan PGT wrote:
Sælir drengir. Hvenær byrjar keppnin á laugardaginn eftir viku?



Sæll

það verður Gokart keppni á undan okkur á laugardag næsta.

Stefnan verður 18:30 að fyrsti bíll komi mökkandi út á braut í fyrsta heati


Kemur auglýsing seinna í kvöld/morgun :thup:

_________________

VW Golf GTi Cabriolet
VW Golf GTi MK4


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 64 posts ]  Go to page Previous  1, 2, 3, 4, 5

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 32 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group