Page 1 of 1

Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Thu 26. Apr 2012 09:04
by Jón Ragnar
Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.


Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!

Image
*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 18:00 og við hættum að keyra um kl. 22:00.

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
● Gilt ökuskírteini.
● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
● Löglegur hjálmur.
● Nagladekk stranglega bönnuð.

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir og þurfa einnig að vera með löglegan hjálm.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram uppá braut, öruggast að mæta með seðla.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Það keyrir enginn án miða!

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 5000 kr.

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendum er þó frjálst að koma gangandi niður í pitt.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með sólina og góða skapið.

F.h. DDA.

Re: Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Thu 26. Apr 2012 22:55
by odinn88
Ohh hvad ég væri til í ad billinn væri klár en madur kíkir sem áhorfandi í stadin

Re: Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Thu 26. Apr 2012 23:55
by Axel Jóhann
odinn88 wrote:Ohh hvad ég væri til í ad billinn væri klár en madur kíkir sem áhorfandi í stadin



Drífur þig bara að klára! :thup:

Re: Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Fri 27. Apr 2012 16:20
by danni orn smarason
Mæti með nýju myndavélina og vona að margir koma :thup:
Hef beðið lengi eftir þessum tíma :angel:

Re: Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Fri 27. Apr 2012 20:24
by sosupabbi
Ég mætti kl 19:00 og ætlaði að glápa á þetta, svæðið var autt fyrir utan einn camaro, gamla mözdu og einn mann í Signal gulum öryggis jakka.

Re: Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Fri 27. Apr 2012 21:46
by danni orn smarason
sosupabbi wrote:Ég mætti kl 19:00 og ætlaði að glápa á þetta, svæðið var autt fyrir utan einn camaro, gamla mözdu og einn mann í Signal gulum öryggis jakka.

það var þannig líka þegar ég kom (kl 20:00) og til 21:00 þá komu 2-3 bílar í viðbót og bara 3 bílar að drifta af þeim

Re: Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Fri 27. Apr 2012 22:45
by lambi1
sosupabbi wrote:Ég mætti kl 19:00 og ætlaði að glápa á þetta, svæðið var autt fyrir utan einn camaro, gamla mözdu og einn mann í Signal gulum öryggis jakka.


Hvernig var þessi camaro vinur? :lol:

Re: Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Tue 01. May 2012 15:52
by sosupabbi
lambi1 wrote:
sosupabbi wrote:Ég mætti kl 19:00 og ætlaði að glápa á þetta, svæðið var autt fyrir utan einn camaro, gamla mözdu og einn mann í Signal gulum öryggis jakka.


Hvernig var þessi camaro vinur? :lol:

Svartur

Re: Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Wed 02. May 2012 00:56
by ValliFudd
sosupabbi wrote:
lambi1 wrote:
sosupabbi wrote:Ég mætti kl 19:00 og ætlaði að glápa á þetta, svæðið var autt fyrir utan einn camaro, gamla mözdu og einn mann í Signal gulum öryggis jakka.


Hvernig var þessi camaro vinur? :lol:

Svartur

Image

Er þetta Camaroinn? :alien:

Re: Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Thu 03. May 2012 20:07
by sosupabbi
ValliFudd wrote:
sosupabbi wrote:
lambi1 wrote:
sosupabbi wrote:Ég mætti kl 19:00 og ætlaði að glápa á þetta, svæðið var autt fyrir utan einn camaro, gamla mözdu og einn mann í Signal gulum öryggis jakka.


Hvernig var þessi camaro vinur? :lol:

Svartur

Mynd
Er þetta Camaroinn? :alien:

Hehe þetta er allt eins í fjarska :oops: :oops:

Re: Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Fri 04. May 2012 01:47
by Danni
Jæja. Búinn að greiða árgjaldið í Driftdeil AÍH, kominn með soðið drif, á til spóldekk.

Þá er bara græja hjálm og mæta að spóla!

Re: Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Fri 04. May 2012 02:42
by srr
Danni wrote:Jæja. Búinn að greiða árgjaldið í Driftdeil AÍH, kominn með soðið drif, á til spóldekk.

Þá er bara græja hjálm og mæta að spóla!

Spurning að horfa líka á Back to the future,,,,,,þar sem þessi viðburður er löngu liðinn :lol:

Re: Akstursæfing DDA 27. apríl 2012.

PostPosted: Fri 04. May 2012 04:06
by Danni
srr wrote:
Danni wrote:Jæja. Búinn að greiða árgjaldið í Driftdeil AÍH, kominn með soðið drif, á til spóldekk.

Þá er bara græja hjálm og mæta að spóla!

Spurning að horfa líka á Back to the future,,,,,,þar sem þessi viðburður er löngu liðinn :lol:

Haha! Spáði ekkert í dagsetningunni í titlinum, skrifaði bara í þráðinn sem var efstur. :oops: