Page 1 of 1

Fyrsti leikadagur sumarsins ... sumardaginn fyrsta!

PostPosted: Sun 15. Apr 2012 18:25
by Einarsss
Akstursæfing DDA 19. apríl 2012.


Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn!
Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip!

Image
*Mynd frá Sæma Boom

Brautin opnar kl. 17:00 og við hættum að keyra um kl. 22:00.

Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
● Gilt ökuskírteini.
● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ.
● Löglegur hjálmur.
● Nagladekk stranglega bönnuð.

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki.

Farþegar eru leyfðir og þurfa einnig að vera með löglegan hjálm.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið.

Miðasala fer fram uppá braut, öruggast að mæta með seðla.
Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum.
Það keyrir enginn án þess að borga

Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php
ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 5000 kr

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendum er þó frjálst að koma gangandi niður í pitt.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með sólina og góða skapið.

F.h. DDA.

Re: Fyrsti leikadagur sumarsins ... sumardaginn fyrsta!

PostPosted: Tue 17. Apr 2012 09:36
by Bartek
Millifærslan hefur verið framkvæmd!

Re: Fyrsti leikadagur sumarsins ... sumardaginn fyrsta!

PostPosted: Tue 17. Apr 2012 09:37
by Jón Ragnar
Bartek wrote:Millifærslan hefur verið framkvæmd!




:thup: :thup: :thup:

Re: Fyrsti leikadagur sumarsins ... sumardaginn fyrsta!

PostPosted: Thu 19. Apr 2012 14:48
by eiddz
Er í lagi að borga meðlimagjaldið uppá braut?

Re: Fyrsti leikadagur sumarsins ... sumardaginn fyrsta!

PostPosted: Thu 19. Apr 2012 14:56
by BOKIEM
eiddz wrote:Er í lagi að borga meðlimagjaldið uppá braut?


ég held það

Re: Fyrsti leikadagur sumarsins ... sumardaginn fyrsta!

PostPosted: Thu 19. Apr 2012 15:09
by Einarsss
eiddz wrote:Er í lagi að borga meðlimagjaldið uppá braut?



Jamm, ekkert mál :)