bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Akstursæfing DDA 12. ágúst '11 (Drift/Grip) https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=52398 |
Page 1 of 1 |
Author: | rufuz [ Fri 12. Aug 2011 12:24 ] |
Post subject: | Akstursæfing DDA 12. ágúst '11 (Drift/Grip) |
![]() Enn og aftur gleymdist að auglýsa æfingu, því við vorum bara að hugsa um keppnina. Akstursæfing DDA 12. ágúst '11. Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn! Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip! ![]() *Mynd frá Sæma Boom Brautin opnar kl. 19:00 og við hættum að keyra kl. 22:00. Í sumar er planið að opna og loka á mínútunni, svo það þýðir ekkert að mæta rétt fyrir 22:00! Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega. Það sem þarf til að fá að keyra er:
● Gilt ökuskírteini. ● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ. ● Löglegur hjálmur. ● Nagladekk stranglega bönnuð. Farþegar eru leyfðir. Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið. Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargjötu í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ. Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum. Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina. Það keyrir enginn án miða! (nema þeir sem eru að skrá sig í félagið og hafa ekki keyrt ennþá, þeir mæta með kvittun og fá að keyra frítt) Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig: http://www.drift.is/skraningifelagid.php ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 4000 kr. Meðlimakortin eru komin. Menn geta nálgast þau á æfingum. (Ath. þó, það virðist hafa gleymst að gera fyrir þónokkra meðlimi. Því verður reddað vonandi fljótlega.) Muna svo: Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Áhorfendum er þó frjálst að koma gangandi niður í pitt. Keyra varlega á malarveginum upp að braut. Koma með sólina og góða skapið. F.h. DDA. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |