bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=51783 |
Page 1 of 2 |
Author: | Jón Bjarni [ Tue 28. Jun 2011 22:33 ] |
Post subject: | KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
KING OF THE STREET 2011 Verður haldinn laugardaginn 9 júlí á kvartmílubrautinni Keppnislýsing: Þetta er keppni fyrir götubíla. Leyfilegt eldsneyti er eingöngu það sem selt er á bensínstöðvum til almennings. Það verður fylgst með því að menn séu að nota löglegt eldsneyti.Öll íblöndunarefni svo sem oktan booster ofl. bönnuð. Allir flokkar eru keyrðir á PRO TREE (öll gulu ljósin kvikna samtímis) og ræst á jöfnu. Tæki skulu standast bifreiðaskoðun á staðnum,frávik eru leyfð á hávaða frá pústi,hvarfakútum,viðvörunarþríhyrningur og keppnisdempurum að öðru leiti skal standast fulla skoðun,púst skal ná út fyrir yfirbyggingu samkvæmt skoðunarhandbók, neyðarhemill , rúðuþurkur, annað sem er krafist í skoðunarhandbók verður að vera til staðar og standast skoðun. Dekkjabúnaður bíla verður að vera DOT eða E merktur. Hoosier Q.T.P og M/T ET Street og sambærileg, hámarkstærð 28X12.50 Hoosier og M/T og sambærileg Drag Radial, hámarkstærð P325/50 (28 X 13.50) (dekkjatakmarkanir gilda ekki í jeppaflokki) Keppt verður í sex flokkum á bílum og fjórum flokkum á mótórhjólum. Bílaflokkar. Bílar með drifi á einum öxli keppa í 5 flokkum: 4 sílendra 6 sílendra 8+ sílendra eingöngu radíal dekk 8+ sílendra yngra en 1985 8+ sílendra eldra en 1985 Fjórhóladrifnir fólksbílar keppa í einum flokk: 4x4 flokkur Jeppar og pallbílar keppa í einum flokk: Jeppaflokkur Mótorhjól: Racerar 799cc og minni 800cc og stærri Hippar 999cc og minni 1000cc og stærri Einnig verða neðangreindir flokkar keyrðir, en þeir gilda ekki til titilsins King of the street. Outlaw street - keyrður 1/4 mílu ,þessi flokkur er ætlaður þeim sem bílum sem eru á númerum en standast ekki bifreiðaskoðun/flokkaskoðun á staðnum vegna t.d slikka,ófullnægjandi pústkerfis o.s.f.v og keppa um titilinn OUTLAW KING OF THE STREET. Limited Street- keyrður 1/4 og er hefðbundin bikarkeppni. http://kvartmila.is/is/sidur/ls-flokkur Opinn flokkur- keyrður 1/8 og er hefðbundin bikarkeppni. Allt leyft,ætlaður dragsterum og bílum sem ekki eru á númerum. Til að taka þátt þarftu að hafa: Gilt ökuskírteni Skoðaðan bíl Hjálm Vera meðlimur Akstursíþróttarklúbb innan ÍSÍ Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda Skráningarfrestur. Formlegri Skráningu lýkur Miðvikudaginn 6 júlí. Hægt verður að skrá sig til 6:00 laugardaginn 9 júlí en þá bætist við 2500 kr aukagjald Einnig verður hægt að skrá sig á staðnum en þá bætist við 5000Kr auka gjald Keppnisgjöld: Keppnisgjald verður 5000kr og það er hægt að greiða það á 2 vegu Annarsvegar kaupa keppnisgjaldið í gegnum vefverslunina okkar eða leggja inn á klúbbinn. Vefverslun - http://kvartmila.is/is/vorur Reikningsnúmerið er:#1101-26-111199 Kennitala:660990-1199 Ef þú hefur áhuga á að taka þátt vinsamlegast sendu þá eftirfarandi upplýsingar á netfangið: jonbjarni@kvartmila.is Nafn Kennitala Aksturíþróttarfélag Keppnistæki Vélarstærð Skipting Aflauki Bílnúmer Flokkur GSM Ég tek einnig á móti skráningum í einkapósti á kvartmíluspjallinu. Dagskrá: 9:30 - 11:00 Mæting Keppanda 11:00 Pittur lokar 11:15 Fundur með keppendum 10:00 - 11:55 Æfingarferðir 11:55 Tímatökur hefjast 13:20 Tímatökum lýkur 13:20 - 13:45 Hádegishlé 13:45 Keppendur Mættir við sín tæki 14:00 Keppni Hefst 16:25 Keppni lýkur - Kærufrestur Hefst 16:55 Kærufrestur liðinn 17:00 Verðlaunaafhenting á pallinum Nánari upplýsingar Skrifa í þráðinn. Senda mér PM eða hringja í 8473217 Jón Bjarni |
Author: | Jón Bjarni [ Sun 03. Jul 2011 22:48 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
Vegna fjölda áskoranna var ákveðið að bæta við einum flokk í KOTS 8+ sílendra eingöngu radíal dekk. í þessum flokk verða öll soft compound dekk bönnuð! |
Author: | Alpina [ Sun 03. Jul 2011 23:11 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
Yesss... besta keppni EVER sem KK hefur haldið ![]() |
Author: | tinni77 [ Mon 04. Jul 2011 00:13 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
Besta Útihátíðin er á sama tíma, svo maður mun ekki láta sjá sig ![]() |
Author: | Alpina [ Mon 04. Jul 2011 00:25 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
Jón Bjarni.. hefur 12 cyl flokkur aldrei verið inn í myndinni ?? |
Author: | bimmer [ Mon 04. Jul 2011 00:39 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
Alpina wrote: Jón Bjarni.. hefur 12 cyl flokkur aldrei verið inn í myndinni ?? Já eða 12 cyl flokkur fyrir svarta bíla með gul framljós. |
Author: | tinni77 [ Mon 04. Jul 2011 00:41 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
Alpina wrote: Jón Bjarni.. hefur 12 cyl flokkur aldrei verið inn í myndinni ?? Það hefur aldrei verið nein skráning af 12 cyl, svo nee hehe ![]() |
Author: | Alpina [ Mon 04. Jul 2011 00:46 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
bimmer wrote: Alpina wrote: Jón Bjarni.. hefur 12 cyl flokkur aldrei verið inn í myndinni ?? Já eða 12 cyl flokkur fyrir svarta bíla með gul framljós. HALLO ,,,,,,,,,,,,,, ![]() ![]() Það er hellingur af 12 cyl bílum á götum landsins ,,þó að þetta séu ekki algengustu 1/4 mílu þátttakendurnir ![]() |
Author: | tinni77 [ Mon 04. Jul 2011 00:55 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
Þú getur hringt í Hjalta og spurt hann í flokk með þér, hann er eflaust til ![]() |
Author: | Alpina [ Mon 04. Jul 2011 00:58 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
tinni77 wrote: Þú getur hringt í Hjalta og spurt hann í flokk með þér, hann er eflaust til ![]() Það voru 2 keppendur í jeppaflokknum í fyrra ![]() |
Author: | tinni77 [ Mon 04. Jul 2011 01:03 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
8969652 gogogo |
Author: | Jón Bjarni [ Mon 04. Jul 2011 01:14 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
Tinni: þessi keppni var sett á dagatal töluvert langt á unda þessari útihátíð... þannig við verðum bara að vera í samkeppni við hana ![]() Sveinbjörn: nei, enda hefur ekki verið nein skráning á slíkum tækjum.. við setjum allt með 8 sílendra og upp úr í sama flokk.... |
Author: | Jón Bjarni [ Tue 05. Jul 2011 19:29 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
Vegna nokkurra fyrirspurna ætlum við að opna fyrir að það sé hægt að skrá sig í LS http://kvartmila.is/is/sidur/ls-flokkur , Hann yrði þá keyrður sem bikarmót. KV Jón Bjarni |
Author: | Alpina [ Tue 05. Jul 2011 22:57 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
Bílar með mótora 600cid og yfir skulu vera 1550kg (3417lbs) að lágmarki með ökumanni. Cabrio er í sömu þyngd m/driver og er 231 cid ......... ![]() |
Author: | Friðrik Daníelsson [ Wed 06. Jul 2011 00:43 ] |
Post subject: | Re: KING OF THE STREET 2011 -- Skráning -- |
Alpina wrote: Bílar með mótora 600cid og yfir skulu vera 1550kg (3417lbs) að lágmarki með ökumanni. Cabrio er í sömu þyngd m/driver og er 231 cid ......... ![]() Þetta þykir nokkuð þungur kvartmílubíll, það er mjög algengt að kvartmílubílar í usa séu um 3000-3300lbs ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |