bmwkraftur.is https://www.bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Akstursæfing DDA 10. júní '11 (Drift/Grip) https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=51540 |
Page 1 of 1 |
Author: | Axel Jóhann [ Fri 10. Jun 2011 09:12 ] |
Post subject: | Akstursæfing DDA 10. júní '11 (Drift/Grip) |
Allar tegundir af bílum velkomnar, afturdrifnir, framhjóladrifnir og drifnir allann hringinn! Hvort sem menn/konur kjósa drift eða grip! *Mynd frá Sæma Boom Brautin opnar kl. 19:00 og við hættum að keyra kl. 22:00, þá er bara orðið dimmt og kalt. Í sumar er planið að opna og loka á mínútunni, svo það þýðir ekkert að mæta rétt fyrir 22:00! Fyrirkomulagið verður með sama sniði og vanalega. Það sem þarf til að fá að keyra er: ● Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun. ● Gilt ökuskírteini. ● Meðlimur í klúbbi innan ÍSÍ. ● Löglegur hjálmur. ● Nagladekk stranglega bönnuð. Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fái að vita hvort þeir þurfa viðauka á æfingum eða ekki. Farþegar eru leyfðir. Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu. Ábyrgðaryfirlýsingin gildir allt sumarið. Miðasala fer fram hjá N1 bæði í Lækjargjötu í Hafnarfirði og í Reykjanesbæ. Það kostar 1000kr fyrir meðlimi DDA og 2000 kr fyrir þá sem eru meðlimir í öðrum klúbbum. Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina. Það keyrir enginn án miða! (nema þeir sem eru að skrá sig í félagið og hafa ekki keyrt ennþá, þeir mæta með kvittun og fá að keyra frítt) Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig: http://www.drift.is/skraningifelagid.php ATH! Árgjaldið hefur hækkað og er núna 4000 kr. Muna svo: Áhorfendur eiga ekki að leggja inni í pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina. Keyra varlega á malarveginum upp að braut. Koma með góða skapið. Spurningar? F.h. DDA |
Author: | Jón Ragnar [ Fri 10. Jun 2011 09:46 ] |
Post subject: | Re: Akstursæfing DDA 10. júní '11 (Drift/Grip) |
Snillingur ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |