Skráning er hafin í aðra driftkeppni sumarsins þann 4. júní
Skráning fer fram hér
Keppnisgjald er 4000kr
Skráningu lýkur á föstudaginn 3. júní kl 15:00
Til að keppa þarf að vera félagi í einhverju af aðildarfélögum ÍSÍ (t.d. BA, DDA, RCA, KK)
Skráning í DDA fer fram hér
Við vekjum athygli á því að kaupa þarf keppnisskírteini frá ÍSÍ
Best er að keppendur greiði fyrir keppnisskírteinið inn á sama reikning og keppnisgjöldin og við sjáum svo um að koma þeim til ÍSÍ.
Dagspassar í ár verða á 5000 kr og gilda þeir til stiga líka, passinn fyrir árið helst óbreyttur eða 10.000 kr
Gott er að prenta út greiðslukvittun og hafa með í keppni.
Dagskrá:
09:00 - Svæði gefið út og æfingar hefjast
12:00 - Æfingum lokið, hádegishlé
13:00 - Undankeppni hefst
14:00 - Útsláttakeppni hefst
16:00 - Úrslit og Verðlaunaafhending
Það getur allt gerst og því þarf ekki að vera að dagskráin standist 100% en við stefnum á það!







