bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Snjódagur á brautinni 27. feb
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=43250
Page 1 of 3

Author:  Aron Andrew [ Fri 26. Feb 2010 14:40 ]
Post subject:  Snjódagur á brautinni 27. feb

Komiði sæl,

Loksins er kominn snjór hérna hjá okkur í höfuðborginni og ætlum við því að hafa opið á rallýcrossbrautinni á morgun.

Brautin opnar klukkan 13:00 og við hættum að keyra um 18:00


Fyrirkomulagið verður með svipuðu sniði og vanalega:

5 hringir keyrðir í einu og þeir sem treysta sér til geta farið á 2 bílum í brautinni í einu, þó með góðu millibili.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
Gilt ökuskírteini
Löglegur hjálmur

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu.

Gjaldið fyrir að keyra eru 1000 kr fyrir þá sem eru skráðir í DDA og ef þú ert ekki skráður í DDA þá er árgjaldið 2000kr og þú færð frítt á fyrstu æfingu.

Vegna misskilnings sem virðist hafa komið upp þá finnst mér gott að nefna það að menn þurfa auðvitað að vera í akstursíþróttaklúbbi innan ÍSÍ til að keyra. Semsagt ef þú ert í BA, KK ofl. þá kostar 2000kr. Ef þú ert í DDA þá kostar 1000kr.


MIKILVÆGT

Miðasala er hjá N1 bæði í Lækjargjötu í hafnarfirði og í reykjanesbæ.

Hægt er að kaupa dagskort, bæði innan og utan félags.

Það kostar 1000kr fyrir meðlimi og 2000 kr fyrir þá sem eru ekki skráðir meðlimir í DDA.

Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.

Það keyrir enginn án miða!

Einnig erum við með árskortin til sölu og kosta þá 10.000 kr og fást hjá okkur upp á braut. Mjög sniðugt að versla þannig ef planið er að mæta reglulega í ár

Það er enginn kominn með meðlimaskírteini þannig að það þarf að skrá sig í klúbbinn.
Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inní pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið :D

Ég veit að þessi auglýsing kemur seint, reynið bara að láta þetta berast til þeirra sem þið þekkið :)

Vona að ég sé ekki að gleyma neinu!

Aron Andrew

Author:  Einarsss [ Fri 26. Feb 2010 14:42 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

og engin nagladekk right?

Author:  Aron Andrew [ Fri 26. Feb 2010 14:45 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

Rétt Einar, engin nagladekk!

Author:  agustingig [ Fri 26. Feb 2010 15:03 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

:thup: flott framtak,, mæti allveg pottþétt,, og kannski keyri ég fyrsta skiptið..

Author:  Aron Andrew [ Fri 26. Feb 2010 15:04 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

agustingig wrote:
:thup: flott framtak,, mæti allveg pottþétt,, og kannski keyri ég fyrsta skiptið..


Það er eins gott fyrir þig! :lol:

Author:  arnibjorn [ Fri 26. Feb 2010 15:07 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

Ef að Ágúst mætir ekki þá verður hann bannaður á kraftinum :lol:

Author:  agustingig [ Fri 26. Feb 2010 15:09 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

arnibjorn wrote:
Ef að Ágúst mætir ekki þá verður hann bannaður á kraftinum :lol:


:cheers: á ekkert að fá 325ix lánaðann hjá systir þinni? :D

Author:  arnibjorn [ Fri 26. Feb 2010 15:13 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

agustingig wrote:
arnibjorn wrote:
Ef að Ágúst mætir ekki þá verður hann bannaður á kraftinum :lol:


:cheers: á ekkert að fá 325ix lánaðann hjá systir þinni? :D

Hann er á nagladekkjum :cry:

Author:  agustingig [ Fri 26. Feb 2010 15:14 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

arnibjorn wrote:
agustingig wrote:
arnibjorn wrote:
Ef að Ágúst mætir ekki þá verður hann bannaður á kraftinum :lol:


:cheers: á ekkert að fá 325ix lánaðann hjá systir þinni? :D

Hann er á nagladekkjum :cry:


:oops:

Author:  kalli* [ Fri 26. Feb 2010 16:20 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

Ég sem hef einmitt verið að bíða eftir einhverju svona og ég er að vinna á morgun :aww: :bawl: :argh:

Author:  tinni77 [ Fri 26. Feb 2010 16:20 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

kalli* wrote:
Ég sem hef einmitt verið að bíða eftir einhverju svona og ég er að vinna á morgun :aww: :bawl: :argh:


Svona atburðir eru oftast á laugardögum :lol:

Author:  ingo_GT [ Fri 26. Feb 2010 16:26 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

Afhverju getur maður ekki verinn búinn að fá úttborgað :(

Ætla hinsvegar að reyna að mæta og koma að horfa á :thup:

Author:  kalli* [ Fri 26. Feb 2010 18:01 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

tinni77 wrote:
kalli* wrote:
Ég sem hef einmitt verið að bíða eftir einhverju svona og ég er að vinna á morgun :aww: :bawl: :argh:


Svona atburðir eru oftast á laugardögum :lol:


Ég veit :aww: Hefði reynt að fá mér kannski frí hefði þetta verið með meira fyrirvara, mun annars reyna að redda mér fríi á stærstu viðburðunum, hitt verður maður bara að missa af :thdown:

Author:  Bartek [ Fri 26. Feb 2010 18:05 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

:cheers: loksins... Bmw X5 Power :lol:






ætla mr Boom mæta*?? og taka flotta myndir!!

Author:  agustingig [ Fri 26. Feb 2010 18:15 ]
Post subject:  Re: Snjódagur á brautinni 27. feb

Bartek wrote:
:cheers: loksins... Bmw X5 Power :lol:






ætla mr Boom mæta*?? og taka flotta myndir!!


Spurning: Get ég komið bara með 2000kr cash? og borgað á svæðinu,, víst að eg er ekki í DDA.. nenni ekki að standa í einhverju veseni útá n1 :lol:

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/