bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Driftæfing föstudaginn 4. sept.
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=39559
Page 1 of 3

Author:  arnibjorn [ Wed 02. Sep 2009 12:46 ]
Post subject:  Driftæfing föstudaginn 4. sept.

Hæ hó

Image
*Mynd frá Sæma Boom,

Brautin opnar klukkan 18:00 en ekki 19:00 eins og vanalega. Mæta á réttum tíma!! Þýðir ekki að mæta hálf 10 og væla svo yfir að hafa bara náð einu rönni. Það er byrjað að dimma hressilega klukkan 10 þannig að þá verður brautinni lokað. ;)

Réttur hringur

Að öðru leiti verður fyrirkomulagið með sama sniði og vanalega:

5 hringir keyrðir í einu og aðeins einn bíll í brautinni í einu.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
Gilt ökuskírteini
Löglegur hjálmur

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu.

Gjaldið fyrir að keyra eru 1000 kr fyrir þá sem eru skráðir í DDA og ef þú ert ekki skráður í DDA þá er árgjaldið 2000kr og þú færð frítt á fyrstu æfingu.

Vegna misskilnings sem virðist hafa komið upp þá finnst mér gott að nefna það að menn þurfa auðvitað að vera í akstursíþróttaklúbbi innan ÍSÍ til að keyra. Semsagt ef þú ert í BA, KK ofl. þá kostar 2000kr. Ef þú ert í DDA þá kostar 1000kr.


MIKILVÆGT

Nú er komið í gagnið miðasala hjá N1 bæði í Lækjargjötu í hafnarfirði og í reykjanesbæ.

Hægt er að kaupa dagskort, bæði innan og utan félags.

Það kostar 1000kr fyrir meðlimi og 2000 kr fyrir þá sem eru ekki skráðir meðlimir í DDA.

Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.

Það keyrir enginn án miða!


Einnig erum við komnir með árskortin til sölu og kosta þá 10.000 kr og fást hjá okkur upp á braut.

Þið sem eruð komnir með meðlimaskírteinin skuluð hafa þau meðferðis.
Það eru N1 kortin sem þið fenguð send heim nýlega
Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inní pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið :D

Vona að ég sé ekki að gleyma neinu!

mbk
Árni Björn f. hönd Driftdeildar AÍH

Author:  Einarsss [ Wed 02. Sep 2009 12:47 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

Ég ætla reyna mæta!

Author:  arnibjorn [ Wed 02. Sep 2009 12:54 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

Ég kemst ekki :x

Nennir einhver að taka bílinn minn og mökka á honum? Hann þráir að spóla!

Author:  Axel Jóhann [ Wed 02. Sep 2009 13:00 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

Ég mæti ekki, ÆTLA púsla M50 saman um helgina. 8)

Author:  agustingig [ Wed 02. Sep 2009 14:49 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

arnibjorn wrote:
Ég kemst ekki :x

Nennir einhver að taka bílinn minn og mökka á honum? Hann þráir að spóla!


í æfingarakstri :lol:

Author:  ValliFudd [ Wed 02. Sep 2009 15:01 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

arnibjorn wrote:
Ég kemst ekki :x

Nennir einhver að taka bílinn minn og mökka á honum? Hann þráir að spóla!

Ég held að ég sé ágætis candidat.. Hef ekki spólað þarna í 2 ár :mrgreen:

Author:  tinni77 [ Wed 02. Sep 2009 15:11 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

arnibjorn wrote:
Ég kemst ekki :x

Nennir einhver að taka bílinn minn og mökka á honum? Hann þráir að spóla!


Andrew tekur hann, er við hliðiná mér ;)

Author:  arnibjorn [ Wed 02. Sep 2009 15:14 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

tinni77 wrote:
arnibjorn wrote:
Ég kemst ekki :x

Nennir einhver að taka bílinn minn og mökka á honum? Hann þráir að spóla!


Andrew tekur hann, er við hliðiná mér ;)

Segðu honum að Valli hafi verið á undan! :lol:

Author:  Aron Andrew [ Wed 02. Sep 2009 15:28 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

arnibjorn wrote:
tinni77 wrote:
arnibjorn wrote:
Ég kemst ekki :x

Nennir einhver að taka bílinn minn og mökka á honum? Hann þráir að spóla!


Andrew tekur hann, er við hliðiná mér ;)

Segðu honum að Valli hafi verið á undan! :lol:


Kjaftæði, þá opna ég ekkert brautina!

Author:  arnibjorn [ Wed 02. Sep 2009 15:33 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

Aron Andrew wrote:
arnibjorn wrote:
tinni77 wrote:
arnibjorn wrote:
Ég kemst ekki :x

Nennir einhver að taka bílinn minn og mökka á honum? Hann þráir að spóla!


Andrew tekur hann, er við hliðiná mér ;)

Segðu honum að Valli hafi verið á undan! :lol:


Kjaftæði, þá opna ég ekkert brautina!

Fine by me :lol:

Author:  ValliFudd [ Wed 02. Sep 2009 15:34 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

arnibjorn wrote:
Aron Andrew wrote:
arnibjorn wrote:
tinni77 wrote:
arnibjorn wrote:
Ég kemst ekki :x

Nennir einhver að taka bílinn minn og mökka á honum? Hann þráir að spóla!


Andrew tekur hann, er við hliðiná mér ;)

Segðu honum að Valli hafi verið á undan! :lol:


Kjaftæði, þá opna ég ekkert brautina!

Fine by me :lol:

Ég díla við flappann um að opna Kvartmílubrautina í staðin þá :mrgreen:

EDIT: Það er sandspyrna daginn eftir :alien:

Author:  ingo_GT [ Wed 02. Sep 2009 22:37 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

Helvítis hefði vilja mæta á e30 318 með soðnu drifi :(

Author:  Birgir Sig [ Thu 03. Sep 2009 19:30 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

ingo_GT wrote:
Helvítis hefði vilja mæta á e30 318 með soðnu drifi :(



og gera hvað???


ég mæti á fáknum mínum, mökka brjálað og keyra útaf

Author:  Alpina [ Thu 03. Sep 2009 20:07 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

Team wannabe mætir :santa:

Author:  Benzari [ Thu 03. Sep 2009 22:04 ]
Post subject:  Re: Driftæfing föstudaginn 4. sept.

arnibjorn wrote:
Það er byrjað að dimma hressilega klukkan 10 þannig að þá verður brautinni lokað. ;)


Vel dimmt í kringum 9 leytið þegar að það er skýjað. :idea:

Góða gúmmíbrennsluskemmtun.

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/