bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

Síðasta driftkeppni sumarsins 22. ágúst
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=20&t=39222
Page 1 of 1

Author:  arnibjorn [ Mon 17. Aug 2009 11:53 ]
Post subject:  Síðasta driftkeppni sumarsins 22. ágúst

Fimmta umferð í Íslandsmeistaramótinu í drifti árið 2009 verður haldin 22. ágúst næstkomandi.

Keppnin verður haldin á akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg.


Dagskrá

Föstudagur
19:00 Æfing fyrir keppendur

Laugardagur
13:00 Svæði opnar/ Mæting keppanda
13:30 Skoðun keppnistækja/útbúnað ökutækja /Fundur með keppendum
14:00 Upphitun hefst
15:00 Upphitun lýkur

15:10 Ræsing 1.umferð
16:15 Hlé
16:45 Ræsing 2. Umferð
17:45 Lok keppni/dómarahlé
18:00 Kærufrestur liðinn
18:30 Tilkynning úrslita
18:30 Verðlaunaafhending

Það kostar 500 kr inn fyrir áhorfendur og eru áhorfendur beðnir um að leggja við Sjoppuna, ekki við pittinn.

Allir þeir sem geta mætt og hjálpað til við keppnishaldið eru velkomnir og beðnir um að mæta áður en upphitun hefst.




Til keppanda:

Keyrður verður öfugur hringur í þetta skiptið!

Upplýsingar um skráningu í Driftdeildina er að finna hér: http://www.drift.is/skraningifelagid.php

Upplýsingar um skráningu í keppnina er að finna hér: http://www.drift.is/keppnisskraning.php

Það gilda sömu reglur og vanalega.

Til að keyra þarf:
Gilt ökuskírteini
Skoðaðan bíl (gilda endurskoðun ef ekki er sett út á öryggisatriði)
Hjálm

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.

Kv. Driftdeild AÍH

Author:  arnibjorn [ Mon 17. Aug 2009 12:51 ]
Post subject:  Re: Síðasta driftkeppni sumarsins 22. ágúst

Breytti aðeins dagskránni.

Fyrsta umferð byrjar 15:15.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/