Page 1 of 1

Æfing á kvartmílubrautinni miðvikudaginn 12 ágúst

PostPosted: Tue 11. Aug 2009 12:15
by Jón Bjarni
Það verður æfing á miðvikudagskvöldið 12.08.09 ef veðrið verður ekki með nein leiðindi.
Byrjað verður að keyra upp úr 7

æfing opinn fyrir alla mótorsportklúbba - 1000 fyrir kk/ba - 3000 fyrir aðra
það þarf að hafa hjálm og skoðaðan bíl
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki
Þetta er á ábyrgð eiganda og keppanda

Það vantar staff á þessa æfingu.
Þeir sem vilja hjálpa sendið mér PM eða mail á flappinn (hjá) simnet.is eða hringið í mig í 8473217
Þetta eru þær stöður sem þarf að filla

Stjórnstöð
Burn-out
Öryggisbíll 1
Öryggisbíll 2
Hlið og merking
Pittprentara

KV
Jón Bjarni

Re: Æfing á kvartmílubrautinni miðvikudaginn 12 ágúst

PostPosted: Wed 12. Aug 2009 22:44
by -Siggi-
Hvaða tíma náði Stebbi ?
Ég sá hann allavega fara 12.35 :thup:

Ég ætlaði að bæta eigið met en fór á nákvæmlega
sama tíma og ég hafði náð fyrir tveimur árum 12.305.
Var á 119mph núna en átti 115mph.

Re: Æfing á kvartmílubrautinni miðvikudaginn 12 ágúst

PostPosted: Wed 12. Aug 2009 23:09
by Alpina
12.35 8) 8) 8) 8)