EDIT: KEPPNI HEFUR VERIÐ FRESTAÐFimmta umferð í Íslandsmeistaramótinu í drifti árið 2009 verður haldin 8. ágúst næstkomandi.
Keppnin verður haldin á akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg.
DagskráFöstudagur19:00 Æfing fyrir keppendur
Laugardagur12:00 Svæði opnar/ Mæting keppanda
12:30 Skoðun keppnistækja/útbúnað ökutækja /Fundur með keppendum
13:00 Upphitun hefst
14:00 Upphitun lýkur
14:15 Ræsing 1.umferð
15:15 Hlé
15:45 Ræsing 2. Umferð
16:45 Lok keppni/dómarahlé
17:00 Kærufrestur liðinn
17:30 Tilkynning úrslita
17:30 Verðlaunaafhending
Það kostar 500 kr inn fyrir áhorfendur og eru áhorfendur beðnir um að leggja við Sjoppuna, ekki við pittinn.
Allir þeir sem geta mætt og hjálpað til við keppnishaldið eru velkomnir og beðnir um að mæta áður en upphitun hefst.
Til keppanda:Keyrður verður öfugur hringur í þetta skiptið!Upplýsingar um skráningu í Driftdeildina er að finna hér:
http://www.drift.is/skraningifelagid.phpUpplýsingar um skráningu í keppnina er að finna hér:
http://www.drift.is/keppnisskraning.phpÞað gilda sömu reglur og vanalega.
Til að keyra þarf:Gilt ökuskírteini
Skoðaðan bíl (gilda endurskoðun ef ekki er sett út á öryggisatriði)
Hjálm
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.
Kv. Driftdeild AÍH