Þá er komið að því.
Fyrsta umferð í Íslandsmeistaramótinu í drifti árið 2009 verður haldin 9. maí næstkomandi.
Keppnin verður haldin á akstursíþróttasvæði AÍH við Krísuvíkurveg.
Dagskrá: 9:00 Svæði opnar/ Mæting keppanda
10:00 Mætingar frestur útrunninn
10:00 Skoðun keppnistækja/útbúnað ökutækja
10:30 Fundur með keppendum
11:00 Upphitun hefst
12:00 Upphitun lýkur
13:00 Ræsing 1.umferð
15:00 Hlé
15:20 Ræsing 2. Umferð
16:30 Lok keppni/dómarahlé
17:00 Kærufrestur liðinn
17:00 Tilkynning úrslita
17:00 Verðlaunaafhending
Það kostar 500 kr inn fyrir áhorfendur og eru áhorfendur beðnir um að leggja við Sjoppuna, ekki við pittinn.
Við erum ekki ennþá komin með posa þannig að borga verður í peningum, ekki með kortum.Til keppenda.Æfing verður fyrir keppendur á föstudagskvöldinu frá kl 19:00 til ca. 22(ekki fastur lokatími)
Einungis þeim sem eru búnir að borga keppnisgjald verður leyft að keyra
Keppendur verða að vera í einhverju af akstursíþróttafélögum ÍSÍ til að keppa, en þó mælum við með því að fólk skrái sig í DDA. Upplýsingar hér
http://rca.forumcircle.com/viewtopic.php?p=2035#2035Keppnisgjald er 5000 krSkráning er opin til kl 15:00 föstudaginn 8. maíTil að skrá sig þarf að greiða 5000 kr inn á reikningsnúmer 322-26-25262 Kt: 450109-0880 og senda email á
driftdeild@gmail.com sem inniheldur:
Nafn
Kennitölu
Símanúmer
Ökutæki
Þau skilyrði sem ökutæki þurfa að uppfylla:Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
Gilt ökuskírteini
Löglegur hjálmur
Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.
Keppendur skulu mæta á milli kl 9:00 og 10:00
Kv. Driftdeild AÍH