Page 1 of 2

"Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 14:22
by ValliFudd
http://www.kvartmila.is/smf/index.php?topic=39310.0

Fræg ummæli Helgu Sigrúnar framsóknarkonu sem er nú að bjóða sig fram.

Þó svo hún beini þeim til aðallega til hjólafólks þá erum við að ræða um mótorsport sem íþrótt en hún horfir ekki á mótorsport sem íþrótt og að það hafi ekkert forvarnargildi
Fullt af málefnanlegri umræðu um málið hefur verið póstað á bloggið hennar og hvet ég ALLA sem vilja sjá braut byggða hér á landi til að skrifa henni línu á bloggið og senda framsóknarflokknum afrit! framsokn@framsokn.is

http://helgasigrun.blog.is/blog/helgasi ... ry/813503/
Fullt af póstum og ummælum hennar þarna inni.


Helga Sigrún skrifaði:

Nú ætla ég ekki að gera lítið úr vélhjólasportinu og mótorhjólaeigendum hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Úr 2300 í 4400 frá 2004-2006. En óneitnalega velti ég því fyrir mér hversu margir í þessum hópi tilheyra lögbrjótunum. Eru þeir 200? Eða 400 sem "neyðast til að stinga af" eins og kemur fram í athugasemdum á heimasíðu Sniglanna. Þá vil ég gjarnan benda á það hér að ofsaakstur er lögbrot sem knattspyrna er ekki. Fyrir það er ég ekki tilbúin að borga sem skattgreiðandi. Og hvað væri þá næst? Æfingasvæði fyrir nauðgara?


Helga Sigrún skrifaði einnig:

Mér finnst eðlilegt að hið opinbera leggi fé í íþróttamannvirki sem hvetja til hreyfingar og almennrar heilsubótar. Forvarnargildi þeirra er ótvírætt ekki síst þegar börn og unglingar eiga í hlut.
Kappakstursbrautir falla í mínum huga ekki undir þá skilgreiningu og rökin fyrir því að hið opinbera fjármagni og jafnvel reki slíkar brautir birtast mér í mörgum tilfellum sem hótun um að menn haldi áfram að leggja samborgara sín í hættu, fái þeir ekki það sem þeir vilja og finna sér þannig blóraböggul fyrir aksturslagi sínu. Ég held því fast í mína skoðun um að það sé ekki sjálfsagt og eðlilegt að skattborgararnir fjármagni tómstundasport örfárra fullorðinna karlmanna (í flestum tilvikum). Ég gæti allt eins krafist þess að ríkið kostaði æfinga-laxá. Ég geri hins vegar ekki ráð fyrir að mönnum finnist það almennt eðlilegt?

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 14:39
by Einarsss
en þurfum við að hafa einhverjar áhyggjur?? ætlar einhver að kjósa framsókn hvort sem er? :lol:

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 15:00
by Aron Andrew
Hata svona beyglur!

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 15:04
by Grétar G.
Hahaha vá hvað hún er ekki að meika mikið sens í þessum dæmum sínum.. nauðgarar og laxveiðimenn

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 15:08
by arnibjorn
Ekki hægt að gera annað en að hlæja að svona.

Greyið konan gengur ekki á öllum. :)

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 15:35
by gunnar
Djöfull getur fólk verið þröngsýnt.. #-o

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 16:14
by Zed III
Fáránleg og ömurlegur samanburður, en...

Ríkið á ekki því miður að sponsa aðstöðu fyrir hagsmunahópa, sama hvort sem við séum hluti af hópnum eða ekki (þetta á við akstursbrautir, tónlistarhús og svo framvegis). Það væri auðvitað í lagi að ríkið eða sveitafélög legðu einhverju sameingarfélagi landskika svo félagið gæti byggt sér braut en það að rikið eigi að byggja slíkt er ekki mér að skapi.

Fái ég frekar minni umsvif ríkis og lægri skatta þannig að ég geti ákveðið hvað ég set peningana mína í.

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 18:21
by bebecar
DrWho wrote:Fáránleg og ömurlegur samanburður, en...

Ríkið á ekki því miður að sponsa aðstöðu fyrir hagsmunahópa, sama hvort sem við séum hluti af hópnum eða ekki (þetta á við akstursbrautir, tónlistarhús og svo framvegis). Það væri auðvitað í lagi að ríkið eða sveitafélög legðu einhverju sameingarfélagi landskika svo félagið gæti byggt sér braut en það að rikið eigi að byggja slíkt er ekki mér að skapi.

Fái ég frekar minni umsvif ríkis og lægri skatta þannig að ég geti ákveðið hvað ég set peningana mína í.


Þú gleymdir að telja upp aðal hýtina, fótboltahallir og sundlaugar :wink:

Ég er reyndar ekki sammála þér í þessu því að frá fornu fari hefur það verið talið hlutverk ríkisins (eða sambærilegs) að stuðla að menningu og menntun. En það skiptir svosem ekki máli hér. Staðreyndin er auðvitað sú að miklum fjármunum er veitt í íþróttamannvirki önnur en akstursíþróttamannvirki og það er lítil sanngirni í því þegar það eru það margir sem stunda sportið (hvað mættu margir á driftkeppnina hjá MS hér um árið???)

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 18:43
by Zed III
uss ekki nefna sundlaugar. Nýja hafnarfjarðarlaugin er að kosta fleiri milljarða. Þetta er hola með vatni for crying out loud.

En það er alveg rétt með þessi íþróttarmannvirki. Hvorki ríki né sveitarfélög eiga að sponsa þetta.

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 19:06
by gstuning
Ef ríki eða bæjir myndu ekki sponsa þetta þá væri ekki til almennilegt íþróttamannvirki á íslandi sem væri ekki skuldum vafið og eigendur (öll íþróttafélögin í mega mínus) myndu auðvitað ekki geta borgað.

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 19:08
by Alpina
[quote=]

íþróttarmannvirki. Hvorki ríki né sveitarfélög eiga að sponsa þetta
.[/quote]

Hvaða hálfviti heldur þessu virkilega fram ,,,,,,,,,


alger skömm af svona ummælum

Aftur á móti mætti vera meira framboð af landi ásamt jákvæðni hjá hinu opinbera,, varðandi aksturs-íþróttir

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 19:36
by BirkirB
Já, er þetta ekki sama kelling og um er að ræða í þessum þráðum:
http://live2cruize.com/spjall/showthread.php?t=37172&highlight=nau%F0gara
http://live2cruize.com/spjall/showthread.php?t=37115&highlight=nau%F0gara

þvílíkt vanfóstur... :roll:

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 21:04
by Zed III
Alpina wrote:[quote=]

íþróttarmannvirki. Hvorki ríki né sveitarfélög eiga að sponsa þetta
.


Hvaða hálfviti heldur þessu virkilega fram ,,,,,,,,,
[/quote]

well, amk ég. Ég sé ekki þörfina á að ríkið/sveitarfélög séu að innheimta af mér hæstu útsvarsprósentu til að standa svo í massa lántökum og uppbyggingu á fjölda íþróttarsvæða. Sjáðu t.d. Hafnarfjörð, þar er svaka mannvirki að rísa hjá bæði FH og Haukum og maður verður að spyrja þessara spurninga. AC Milan og Inter geta sameinast með heimavöll en FH og Haukar verða að hafa sér.

Með því að halda því fram að ríkið eigi að standa í þessum framkvæmdum má líka halda því fram að tónlistarhúsið eigi rétt á sér, og ég efa að mörgum finnist það.

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 21:44
by Alpina
Það er sagt af þér ,, af einkennandi fáfræði,

FH/HAUKAR dæmið er reyndar ekki gott dæmi ,, sammála því ,, en hver annar en ríki og sveitafélög styrkja ungdóm til íþrótta-iðkunnar og betra lífs,,

EGILSHÖLLINN osfrv, er dæmi um samverustað þúsunda ungmenna ,,,,,, OG FULORÐINNA


alltaf gott að fara skynsamlegu leiðina ,, alveg sammála því en að lasta byggingu á íþrótta-mannvirkjum tel ég vera slæmt veganesti

Aftur á móti ,, þó mótorsport sé á hakanum,, og skóflunni, þá er þátttökufjöldinn þar brot af annari íþrótta iðkunn,,,,,, því miður

Re: "Bygging brautar líkt við Nauðgun í boði hins opinbera"

PostPosted: Tue 03. Mar 2009 23:58
by gstuning
Alpina wrote:Aftur á móti ,, þó mótorsport sé á hakanum,, og skóflunni, þá er þátttökufjöldinn þar brot af annari íþrótta iðkunn,,,,,, því miður


Enda hvergi hægt að iðka mótorsport.
Build it and they will come !!