Fræg ummæli Helgu Sigrúnar framsóknarkonu sem er nú að bjóða sig fram.
Þó svo hún beini þeim til aðallega til hjólafólks þá erum við að ræða um mótorsport sem íþrótt en hún horfir ekki á mótorsport sem íþrótt og að það hafi ekkert forvarnargildi
Fullt af málefnanlegri umræðu um málið hefur verið póstað á bloggið hennar og hvet ég ALLA sem vilja sjá braut byggða hér á landi til að skrifa henni línu á bloggið og senda framsóknarflokknum afrit! framsokn@framsokn.is
http://helgasigrun.blog.is/blog/helgasi ... ry/813503/
Fullt af póstum og ummælum hennar þarna inni.
Helga Sigrún skrifaði:
Nú ætla ég ekki að gera lítið úr vélhjólasportinu og mótorhjólaeigendum hefur fjölgað mikið á undanförnum árum. Úr 2300 í 4400 frá 2004-2006. En óneitnalega velti ég því fyrir mér hversu margir í þessum hópi tilheyra lögbrjótunum. Eru þeir 200? Eða 400 sem "neyðast til að stinga af" eins og kemur fram í athugasemdum á heimasíðu Sniglanna. Þá vil ég gjarnan benda á það hér að ofsaakstur er lögbrot sem knattspyrna er ekki. Fyrir það er ég ekki tilbúin að borga sem skattgreiðandi. Og hvað væri þá næst? Æfingasvæði fyrir nauðgara?
Helga Sigrún skrifaði einnig:
Mér finnst eðlilegt að hið opinbera leggi fé í íþróttamannvirki sem hvetja til hreyfingar og almennrar heilsubótar. Forvarnargildi þeirra er ótvírætt ekki síst þegar börn og unglingar eiga í hlut.
Kappakstursbrautir falla í mínum huga ekki undir þá skilgreiningu og rökin fyrir því að hið opinbera fjármagni og jafnvel reki slíkar brautir birtast mér í mörgum tilfellum sem hótun um að menn haldi áfram að leggja samborgara sín í hættu, fái þeir ekki það sem þeir vilja og finna sér þannig blóraböggul fyrir aksturslagi sínu. Ég held því fast í mína skoðun um að það sé ekki sjálfsagt og eðlilegt að skattborgararnir fjármagni tómstundasport örfárra fullorðinna karlmanna (í flestum tilvikum). Ég gæti allt eins krafist þess að ríkið kostaði æfinga-laxá. Ég geri hins vegar ekki ráð fyrir að mönnum finnist það almennt eðlilegt?





