Er ekki kominn tími til að við förum út að leika okkur í snjónum??
Planið er að hafa vetrarleikdag uppá braut næsta sunnudag (8.feb). Þetta er samt birt með smá fyrirvara af því að við eigum eftir að fara uppá braut og skoða aðstæður. En ég geri fastlega ráð fyrir að þessi leikdagur verði að veruleika.
Nota bara staðlaða auglýsingu frá síðasta sumri.
Vetrardrift æfing uppá Rallýkross brautinni við Krísuvíkurveg sunnudaginn 8. febrúar. Æfingin byrjar klukkan 13:00 og líkur 17:00 eða bara þegar við nennum ekki að keyra meira
Æfingin er í umsjón Driftdeildar AÍH.
Fyrirkomulagið verður með svipuðu sniði og áður hefur verið:
Einn bíll keyrir í einu á brautinni
Hver bíll keyrir 5 hringi í einu
Það sem þarf til að mega keyra:
Hjálmur
Gilt ökuskírteini
Bifreiðar verða að vera skoðaðar
Ónelgd dekk
Greiða þarf 1000kr innan félags, 1500kr utan félags fyrir æfingar.
Skráning í félagið kostar 2000kr árið og eftir það kosta allar æfingar 1000kr.
Ef menn kjósa að skrá sig ekki í klúbbinn kostar hvert skipti 1500kr.
Þegar menn skrá sig í klúbbinn er fyrsta æfingin frí, þannig að það kostar bara 2000kr en ekki 3000kr


