bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Fri 02. May 2025 14:35

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 11 posts ] 
Author Message
PostPosted: Fri 07. Aug 2009 17:13 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Hæ hó

Image
*Mynd frá Sæma Boom, vonandi er það í lagi(Sæmi sendu mér haturs pm ef þú vilt að ég taki þetta út)

Ætlum að hafa opna æfingu á morgun þar sem að keppnin féll niður.
Þá geta allavega þessir 5 sem að skráðu sig komið og klárað dekkin sín....... eða ætli það mæti fleiri á æfinguna?? ;)

Skv. vedur.is á að hanga þurrt á morgun þannig að komið með auka dekk til skiptana! :D

Brautin opnar klukkan 13:00.

Réttur hringur

Að öðru leiti verður fyrirkomulagið með sama sniði og vanalega:

5 hringir keyrðir í einu og aðeins einn bíll í brautinni í einu.

Það sem þarf til að fá að keyra er:

Skoðaður bíll eða endurskoðun svo lengi sem að ekki er sett útá öryggisatriði. Framvísa þarf skoðunarvottorði ef að bíll er ekki með fullgilda skoðun.
Gilt ökuskírteini
Löglegur hjálmur

Við mælum svo endilega með því að menn hafi samband við sín tryggingarfélög og fá að vita hvort þeir þurfa viðauka eða ekki.

Farþegar eru leyfðir.
Bæði ökumenn og farþegar skrifa undir ábyrgðaryfirlýsingu á svæðinu.

Gjaldið fyrir að keyra eru 1000 kr fyrir þá sem eru skráðir í DDA og ef þú ert ekki skráður í DDA þá er árgjaldið 2000kr og þú færð frítt á fyrstu æfingu.

Vegna misskilnings sem virðist hafa komið upp þá finnst mér gott að nefna það að menn þurfa auðvitað að vera í akstursíþróttaklúbbi innan ÍSÍ til að keyra. Semsagt ef þú ert í BA, KK ofl. þá kostar 2000kr. Ef þú ert í DDA þá kostar 1000kr.


MIKILVÆGT

Nú er komið í gagnið miðasala hjá N1 bæði í Lækjargjötu í hafnarfirði og í reykjanesbæ.

Hægt er að kaupa dagskort, bæði innan og utan félags.

Það kostar 1000kr fyrir meðlimi og 2000 kr fyrir þá sem eru ekki skráðir meðlimir í DDA.

Biðjið bara um dagskort á Rallýkrossbrautina.

Það keyrir enginn án miða!


Einnig erum við komnir með árskortin til sölu og kosta þá 10.000 kr og fást hjá okkur upp á braut.

Þið sem eruð komnir með meðlimaskírteinin skuluð hafa þau meðferðis.
Það eru N1 kortin sem þið fenguð send heim nýlega
Hér eru svo upplýsingar um hvernig á að skrá sig:
http://www.drift.is/skraningifelagid.php

Muna svo:
Áhorfendur eiga ekki að leggja inní pitt, þeir skulu leggja hægra megin við brautina.
Keyra varlega á malarveginum upp að braut.
Koma með góða skapið :D

Vona að ég sé ekki að gleyma neinu!

mbk
Árni Björn f. hönd Driftdeildar AÍH

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 07. Aug 2009 18:39 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 23. Jul 2008 02:26
Posts: 2371
Location: Í skúrnum eða á hlið
E30 kominn með endurskoðun og ég mæti á morgun og ætla að prófa keyra minn fyrsta hring á þessari braut :mrgreen:

En ég er smá ruglaður,Ég er skráður í DDA en ég hef aldri keyrt áður þarna

Á ég að koma með 1000 þús kall eða fæ ég að keyra frítt fyrst þetta er mitt fyrsta skiftið ? :)

_________________
Bmw e36 323 Touring M-tech

Seldir
3 e39 523ia-540ia
8 e36 316-318-318is-320-325
2 e30 316-325


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 07. Aug 2009 18:42 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
ingo_GT wrote:
E30 kominn með endurskoðun og ég mæti á morgun og ætla að prófa keyra minn fyrsta hring á þessari braut :mrgreen:

En ég er smá ruglaður,Ég er skráður í DDA en ég hef aldri keyrt áður þarna

Á ég að koma með 1000 þús kall eða fæ ég að keyra frítt fyrst þetta er mitt fyrsta skiftið ? :)


Ef þú ert búinn að skrá þig og borga 2000kr þá keyriru frítt í fyrsta skiptið, alveg sama hvenær þú skráir þig. :)

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Fri 07. Aug 2009 18:55 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 23. Jul 2008 02:26
Posts: 2371
Location: Í skúrnum eða á hlið
arnibjorn wrote:
ingo_GT wrote:
E30 kominn með endurskoðun og ég mæti á morgun og ætla að prófa keyra minn fyrsta hring á þessari braut :mrgreen:

En ég er smá ruglaður,Ég er skráður í DDA en ég hef aldri keyrt áður þarna

Á ég að koma með 1000 þús kall eða fæ ég að keyra frítt fyrst þetta er mitt fyrsta skiftið ? :)


Ef þú ert búinn að skrá þig og borga 2000kr þá keyriru frítt í fyrsta skiptið, alveg sama hvenær þú skráir þig. :)


Ok skill núna :) ...Mæti á morgun og geri mig að fíbli :lol: :mrgreen:

_________________
Bmw e36 323 Touring M-tech

Seldir
3 e39 523ia-540ia
8 e36 316-318-318is-320-325
2 e30 316-325


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 08. Aug 2009 03:18 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
má ekki keyra rangan hring ?


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 08. Aug 2009 03:47 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Dóri- wrote:
má ekki keyra rangan hring ?

Nei það er ólöglegt.

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 08. Aug 2009 04:25 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
arnibjorn wrote:
Dóri- wrote:
má ekki keyra rangan hring ?

Nei það er ólöglegt.


Afhverju er það ólöglegt ? :shock:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 08. Aug 2009 04:27 
Offline
Formúlubílstjóri

Joined: Wed 03. Aug 2005 18:16
Posts: 16512
Location: Rvk city
Dóri- wrote:
arnibjorn wrote:
Dóri- wrote:
má ekki keyra rangan hring ?

Nei það er ólöglegt.


Afhverju er það ólöglegt ? :shock:

Af því að ég segi það.. og ég er lögin.

Nei ég er bara að bulla. Ef þú biður roooooosalega fallega þá er möguleiki á að þú fáir að keyra öfugan hring. :wink:

_________________
Enginn bíll!


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 08. Aug 2009 04:28 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
arnibjorn wrote:
Dóri- wrote:
arnibjorn wrote:
Dóri- wrote:
má ekki keyra rangan hring ?

Nei það er ólöglegt.


Afhverju er það ólöglegt ? :shock:

Af því að ég segi það.. og ég er lögin.

Nei ég er bara að bulla. Ef þú biður roooooosalega fallega þá er möguleiki á að þú fáir að keyra öfugan hring. :wink:


víjjj svo bara vona að það verði rigning því að ég á engin spóldekk :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 08. Aug 2009 13:32 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Sun 23. Nov 2003 22:49
Posts: 7764
Location: Kópavogur
Komið nú að keyra, það er blíða hérna uppfrá!

_________________
BMW E46 318i Touring


Top
 Profile  
Reply with quote  
PostPosted: Sat 08. Aug 2009 13:44 
Offline
Formúlubílstjóri
User avatar

Joined: Fri 04. Mar 2005 16:35
Posts: 2042
Aron Andrew wrote:
Komið nú að keyra, það er blíða hérna uppfrá!


Er á leiðinni


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 11 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 1 guest


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group