Vantar dekk af stærðinni 205/60R15, vetrardekk helst óneglt.
Búinn að tala við Vöku og þeir eiga þetta ekki til.
Var að koma frá partasölunni Start þegar ég lenti upp á kannti í einni beygju, ótrúlegur aulaháttur ekki hálku að kenna. Dekkið er bólgið út á hliðinni og ekki óhætt að nota það áfram. Þetta er seinasti veturinn sem ég ætla að nota þessi dekk þannig að ég þarf bara að redda mér fram á sumar.
Þurfti að kaupa center tie rod í stýrisbúnaðinn eftir að ég fékk endurskoðun dag og var að kaupa það hjá Start.
Skemmtilegur BMW dagur hjá mér!!
