bmwkraftur.is
https://www.bmwkraftur.is/spjall/

195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17
https://www.bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=2&t=54180
Page 1 of 1

Author:  gjonsson [ Fri 02. Dec 2011 01:40 ]
Post subject:  195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17

Vantar pláss í bílskúrinn svo það væri frábært ef einhver vildi vera svo vænn að losa mig við þetta fyrir slikk.

Dunlop SP Sport 200, 195/60R15
Umgangur á stálfelgum undan E36 með koppum.
Eitt dekkið lekur en annars nóg eftir af gripi.
Verð: TILBOÐ

Image

Image

Image

Brigdestone Potenza 225/45R17
Eitt stykki, kantslitið en vel nothæft.
Verð: TILBOÐ

Image

Image

Author:  tinni77 [ Fri 02. Dec 2011 01:45 ]
Post subject:  Re: 195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17

Vill ekki vera með nein leiðindi en orðið umgangur er yfirleitt notað þegar mikið af fólki er að ganga um sama staðinn eða álíka ;)

Talað um "einn dekkjagang" eða bara "gang af 15" dekkjum" ;)

Author:  srr [ Fri 02. Dec 2011 01:55 ]
Post subject:  Re: 195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17

tinni77 wrote:
Vill ekki vera með nein leiðindi en orðið umgangur er yfirleitt notað þegar mikið af fólki er að ganga um sama staðinn eða álíka ;)

Talað um "einn dekkjagang" eða bara "gang af 15" dekkjum" ;)

Þú ert ekki búinn að vera vinna í dekkjum er það?
Þetta er old-school tire-lingo 8)

Author:  gjonsson [ Fri 02. Dec 2011 02:52 ]
Post subject:  Re: 195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17

srr wrote:
tinni77 wrote:
Vill ekki vera með nein leiðindi en orðið umgangur er yfirleitt notað þegar mikið af fólki er að ganga um sama staðinn eða álíka ;)

Talað um "einn dekkjagang" eða bara "gang af 15" dekkjum" ;)

Þú ert ekki búinn að vera vinna í dekkjum er það?
Þetta er old-school tire-lingo 8)


Haha...þetta er frábært! :lol:
Þetta er samt líklega eitthvað lingó sem ég hef tekið úr FÍB blöðunum í gegnum árin.
Biðst velvirðingar ef þetta fer fyrir brjóstið á spjallverjum.

Author:  jens [ Fri 02. Dec 2011 03:33 ]
Post subject:  Re: 195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17

Við hérna "gömlu" þekkjum alveg þetta orðatiltæki 8)

Author:  Saxi [ Fri 02. Dec 2011 13:05 ]
Post subject:  Re: 195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17

Þetta er bara íslenska, ekkert óldskúl neitt.

Svo er nóg eftir af gripi.

Author:  gjonsson [ Fri 02. Dec 2011 21:41 ]
Post subject:  Re: 195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17

Saxi wrote:
Þetta er bara íslenska, ekkert óldskúl neitt.

Svo er nóg eftir af gripi.


Þetta var nú bara innsláttarvilla sem hefur nú verið leiðrétt.
Annars fást þessi dekk á góða verðinu enda er pláss í bílskúrnum lúxus sem ég met ekki til fjár.

Author:  B3 Touring Nr46 [ Sun 04. Dec 2011 03:35 ]
Post subject:  Re: 195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17

Mörður Árnason hringdi hann vill fá málfræði bókina sína aftur !!!

Saxi wrote:
Þetta er bara íslenska, ekkert óldskúl neitt.

Svo er nóg eftir af gripi.

Author:  gjonsson [ Mon 05. Dec 2011 19:53 ]
Post subject:  Re: 195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17

Burt séð frá öllum innsláttar, stafsetningar og rökvillum þá fæst þetta á klink.
Tilvalin jólagjöf fyrir reykspólara og dekkjasparkara. :santa:

Author:  gjonsson [ Sun 05. Feb 2012 18:36 ]
Post subject:  Re: 195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17

Enn til og fæst á 5000 kr allt saman.

Author:  Sezar [ Sun 05. Feb 2012 20:24 ]
Post subject:  Re: 195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17

Ég tek þetta fyrst enginn vill þetta :wink:

Author:  gjonsson [ Sun 05. Feb 2012 22:31 ]
Post subject:  Re: 195/60R15 umgangur og stakt 225/45R17

Sezarinn hefur nú tryggt sér dekkin. :thup:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/